Snemma í morgun var bíl ekið inn í garð og utan í hús í Yrsufelli í Reykjavík í morgun. Innst í götunni er leikskóli og hafa íbúar kvartað undan of hröðum akstri í götunni. Það ber því að huga að frekara umferðaröryggi í götunni.
„Þetta var ökumaður sem keyrði í gegnum limgerði við húsið og stöðvaði svo ekki bílinn og lét engan vita,” segir Axel Jón Ellenarson, íbúi í götunni. Tveir voru í bílnum og reyndi ökumaður að keyra í burtu. „Ég bað konuna um að drepa á bílnum og bíða eftir lögreglunni,” segir Axel.
„Konan gat ekki svarað því hvernig þetta vildi til. Konan gat ekki svarað því öðruvísi en að hún hefði misst stjórn á bílnum. Hún kemur frá endanum á húsinu, kemur á milli raðhúsanna og tekur u-beygju inn í garðinn. Hún býr í raðhúsalengju hér fyrir neðan”.
Axel hafði ekki rætt við aðra íbúa í götunni en íbúar hafa kvartað undan hraðakstri á þessum tiltekna bíl. Axel segir vera of mikið um hraðakstur í götunni. „Það er því miður mikið um hraðan akstur í götunni. Þetta er 30 kílómetra gata og það er leikskóli hérna í endanum. Það eru börn á ferð hér og það er of mikill hraðakstur. Sumir keyra bara mjög hratt“.
Ekki varð mikið tjón á húsinu en það má sjá lítið tjón á klæðningunni. Axel segist þakklátur fyrir að enginn slasaðist.