Hitinn gæti náð 18 stigum

Hitaspá á landinu klukkan 14 í dag.
Hitaspá á landinu klukkan 14 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Hit­inn gæti náð allt að 18 stig­um á norðaust­an­verðu land­inu í dag en í dag verða sunn­an 5-13 m/​s og súld eða dá­lít­il rign­ing en þurrt verður á norðaust­an­verðu land­inu. Hit­inn verður á bil­inu 7 til 18 stig.

Það bæt­ir í vind og úr­komu sunn­an- og vest­an­lands í kvöld.

Á morg­un verða sunn­an og suðvest­an 10-18 m/​s, hvass­ast verður norðvest­an til. Bjart verður með köfl­um norðaust­an­lands en ann­ars rign­ing. Það dreg­ur úr vætu síðdeg­is. Hit­inn verður 8 til 18 stig og verður áfram hlýj­ast á norðaust­an­verðu land­inu.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert