Hlýindi hafa sett svip sinn á fyrstu mánuði ársins

Veðrið hefur leikið við stúdentsefnin að undanförnu.
Veðrið hefur leikið við stúdentsefnin að undanförnu. mbl.is/Eyþór

Hlý­indi hafa sett svip á fyrstu mánuði árs­ins 2025.Það hef­ur verið óvenju­hlýtt það sem af er ári í Reykja­vík. Þetta kem­ur fram í tíðarfars­yf­ir­liti Veður­stof­unn­ar.

Meðal­hit­inn þar fyrstu fjóra mánuði árs­ins var 2,9 stig í Reykja­vík, sem er 1,4 stig­um yfir meðallagi ár­anna 1991-2020. Meðal­hit­inn raðast í 4. hlýj­asta sæti á lista 155 ára mæl­inga.

Á Ak­ur­eyri var meðal­hiti mánaðanna fjög­urra 1,4 stig, sem er 1,1 stigi yfir meðallagi ár­anna 1991-2020. Meðal­hit­inn þar raðast í 12. til 13. hlýj­asta sæti á lista 145 ára.

Þetta er mik­ill viðsnún­ing­ur frá því í fyrra. Meðal­hiti í Reykja­vík fyrstu fjóra mánuði árs­ins 2024 var 1,0 stig. Það er 0,6 stig­um und­ir meðallagi ár­anna 1991-2020 og 0,8 stig­um und­ir meðallagi síðustu tíu ára. Meðal­hit­inn í Reykja­vík raðaðist þá í 67. hlýj­asta sæti á lista 154 ára.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert