Ingólfur Ragnar Axelsson, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Hvalvörðugilslæks sem var í síðustu viku sektað af Félagsdómi fyrir að hóta starfsmanni uppsögn gengi hann í stéttarfélag, hefur áður sætt gagnrýni fyrir að brjóta á réttindum starfsmanna fyrirtækja sinna en nokkuð hefur verið fjallað um fyrirtæki hans í fjölmiðlum.
Þann 30. apríl var fyrirtækið Hvalvörðugilslækur sektað um 1.3 milljónir króna fyrir að hafa hótað starfsmanni uppsögn ef hann gengi í Verkalýðsfélags Suðurlands. Þá var fyrirtækinu gert að greiða 600 þúsund krónur í málskostnað.
Þetta kemur fram í niðurstöðu Félagsdóms í málinu en í henni má finna skilaboð sem Ingólfur Ragnar, eigandi fyrirtækisins, sendi á starfsmanninn á samskiptaforritinu Slack í kjölfar þess að starfsmaðurinn gerði fyrirtækinu grein fyrir því að hann hygðist ganga í Verkalýðsfélag Suðurlands.
„Ef þú vilt ganga í stéttarfélagið sem þú varst í verður þér sagt upp, bara svo
það sé alveg skýrt,“ sendi Ingólfur meðal annars á starfsmanninn og í öðrum skilaboðum skrifaði hann:
„Þú skalt því endurskoða tölvupóstinn sem þú sendir á bókhaldið um að
ganga í stéttarfélagið eða fara að leita að nýrri vinnu.“
Félagsdómur viðurkenndi í ákvörðun sinni að skilaboðin feli í sér hótanir um uppsögn á ráðningasamningi og væru brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mál tengd fyrirtækjum Ingólfs Ragnars rata í fjölmiðla en hann hefur verið áberandi innan ferðaþjónustugeirans síðustu ár og rekur meðal annars ferðaþjónustufyrirtækin Tröllaferðir og Tröllahótel.
Í lok árs 2023 greindi Heimildin frá því að fimm starfsmenn Tröllaferða hefðu leitað til stéttarfélagana VR og Leiðsagnar vegna þess að þeir töldu brotið á réttindum sínum í starfi.
Gagnrýni starfsmanna fólst meðal annars í að þeir hafi ekki fengið greidd laun samkvæmt kjarasamningi og að þeim hafi verið meinað að vera í stéttarfélagi.
Þá fjallaði Morgunblaðið árið 2019 um kröfur ferðaþjónustufyrirtækisins Arcanum og tíu landeigenda við Sólheimasand um að leggja á lögbann vegna skipulagðra hjólaferða sem Tröllaferðir voru með á sandinum að flugvélarflakinu sem þar er að finna. Þeirri kröfu var hafnað.
Það er þó ekki svo að allar fréttir um fyrirtæki Ingólfs Ragnars hafi fjallað um málaferli og umkvartanir en árið 2019 birtist umfjöllun um velgengni Tröllaferða á mbl.is.
Þar var rakið hvernig fyrirtækið skilaði 122 milljóna króna hagnaði eftir skatta árið 2018, samanborið við 3,7 milljónir árið áður. Tekjur félagsins námu 966 milljónum króna árið 2018, en voru 431 árið 2017.
Umfjöllun um Ingólf Ragnar hefur ekki einskorðast við umfjöllun í innlendum fjölmiðlum en árið 2017 fjallaði breski miðillinn Independant um misheppnaðan brandara Ingólfs um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.