Inga skipar nýjan fulltrúa til að uppfylla lög

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Karítas

Inga Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, hef­ur skipað nýj­an full­trúa í stjórn Hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un­ar (HMS) til að upp­fylla lög um jafna stöðu og jafn­an rétt kynj­anna.

Nýr full­trúi í stjórn verður Sig­ríður Ósk Bjarn­ar­dótt­ir, doktor í bygg­ing­ar­verk­fræði. Hún tek­ur sæti Rún­ars Sig­ur­jóns­son­ar sem verður varamaður, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá ráðuneyt­inu. 

Eft­ir breyt­ing­arn­ar verður stjórn­in svo skipuð:

• Sig­urður Tyrf­ings­son, formaður, án til­nefn­ing­ar,
• Jón­as Yngvi Ásgríms­son, án til­nefn­ing­ar,
• Odd­ný Árna­dótt­ir, án til­nefn­ing­ar,
• Sig­ríður Ósk Bjarna­dótt­ir, án til­nefn­ing­ar,
• Arn­ar Þór Sæv­ars­son, til­nefnd­ur af Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga.

Til vara:
• Hanna Guðmunds­dótt­ir, án til­nefn­ing­ar,
• Rún­ar Sig­ur­jóns­son, án til­nefn­ing­ar.

Skip­un Ingu vakti tals­verða at­hygli þegar hún skipaði fyrri stjórn­ina um miðjan mars, en meðal ann­ars gerði Verk­fræðifé­lagið at­huga­semd­ir við að eng­inn stjórn­ar­manna byggi yfir sér­fræðikunn­áttu á sviði mann­virkja­gerðar. Þá óskaði Jafn­rétt­is­stofa eft­ir út­skýr­ing­um ráðherra í gær á skip­un­inni þar sem a.m.k. tveir stjórn­ar­menn af fimm þurfa að vera kon­ur sam­kvæmt jafn­rétt­is­lög­um.

Inga hafði látið hafa eft­ir sér að við til­nefn­ing­ar í stjórn­ir væri heim­ilt að víkja frá þeirri meg­in­reglu að til­nefna bæði karl og konu og það hefði hún ein­mitt gert. Hún hefði skipað þá aðila sem hún teldi hæf­asta til að fram­fylgja stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar í hús­næðismál­um. „Þetta er póli­tískt skipuð nefnd,“ sagði Inga.

Kom málið meðal ann­ars til umræðu á þingi í gær þegar Kristrún var spurð út í um­mæli Ingu og skip­un henn­ar á stjórn­inni. Sagði Kristrún þá að hún vissi ekki bet­ur en að Inga hafi svarað því til að sam­kvæmt lög­um um jafna stöðu og jafn­an rétt kynj­anna, sé heim­ilt að víkja frá meg­in­regl­unni að til­nefna bæði karl og konu ef ein­hverj­ar ástæður eru tald­ar vera fyr­ir því, til að mynda hæfi stjórn­ar­manna. Sagðist hún treysta Ingu til að meta að um væri að ræða ein­stak­linga sem hún teldi hæfa til að gegna embætt­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert