Útúrsnúningar og „klámhögg“

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík var borgarstjóri á síðasta …
Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík var borgarstjóri á síðasta ári. mbl.is/Eyþór

Ein­ar Þor­steins­son odd­viti Fram­sókn­ar í Reykja­vík er ósátt­ur við at­huga­semd­ir Hild­ar Björns­dótt­ur odd­vita Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­inni um fjölg­un starfs­manna borg­ar­inn­ar. Seg­ir hann um út­úr­snún­inga og „klám­högg“ að ræða í sam­tali við mbl.is.

At­huga­semd­ir henn­ar féllu í odd­vitaum­ræðum í borg­ar­stjórn í dag um árs­reikn­ing borg­ar­inn­ar vegna síðasta árs, en Ein­ar var þá borg­ar­stjóri.

„Þessi aukni fjöldi launa­seðla um ára­mót eru starfs­menn sem unnu í fram­kvæmd kosn­ing­anna. Þeir fegnu launa­seðla frá borg­inni en ríkið greiðir engu að síður laun­in,“ seg­ir Ein­ar.

Ótrú­leg­ur viðsnún­ing­ur

„Hildi Björns­dótt­ur er greini­lega mikið í mun að ná at­hygli þessa dag­ana enda yf­ir­vof­andi odd­vita­slag­ur hjá Sjálf­stæðismönn­um í Reykja­vík. Það færi bet­ur á því að gleðjast yfir því sem vel er gert enda afar já­kvæðar frétt­ir fyr­ir borg­ar­búa hvernig tek­ist hef­ur að snúa við rekstr­in­um,“ seg­ir Ein­ar.

Seg­ir hann stöðugild­um hjá borg­inni í hans valdatíð ekki hafa fjölgað nema um 31 starfs­mann, sem sé „ótrú­leg­ur viðsnún­ing­ur“.

„Stöðugildi fóru úr 8575 í 8606. Lang­flest­ar ráðning­ar eru störf sem eru í fram­línuþjón­ustu við borg­ar­búa til dæm­is á leik­skól­um eða í íbúðakjörn­um fyr­ir fatlað fólk. Fjöldi starfs­manna seg­ir ekk­ert um um­fang launa­kostnaðar enda starfa marg­ir í hluta­störf­um, sér í lagi í fram­línuþjón­ustu.“

Niðurstaðan sýni að ráðning­ar­regl­ur sem sett­ar voru og þétt aðhald með ráðning­um hafa skilað til­ætluðum ár­angri. Mik­il­vægt sé að halda áfram á sömu braut.

Ein­ar bend­ir á að í fjár­mála­stefnu borg­ar­inn­ar sé mark­miðið að hlut­fall launa­kostnaðar fari ekki upp fyr­ir 80% af sam­an­lögðum út­svars og jöfn­un­ar­sjóðsgreiðslum.

„Í minni borg­ar­stjóratíð náðist þetta mark­mið og er hlut­fallið núna 79.1% en í upp­hafi kjör­tíma­bils var hlut­fallið um 86%.“

Sjálf­stæðis­menn öf­undi Fram­sókn

„Ef Sjálf­stæðis­menn myndu beita sömu brell­um í umræðunni um starfs­manna­fjölda í Kópa­vogi myndu þeir draga þá álykt­un að starfs­mönn­um Kópa­vogs­bæj­ar hefði fjölgað úr 3090 í 3386 eða um 9.5%. Mér finnst afar ólík­legt að svo sé enda skil­ar sam­starf Sjálf­stæðis­flokks og Fram­sókn­ar nokkuð ábyrg­um rekstri og góðri niður­stöðu fyr­ir síðasta ár,“ seg­ir Ein­ar.

Hon­um sýn­ist Sjálf­stæðis­menn öf­unda Fram­sókn.

„Ég get því ekki annað en túlkað þetta upp­hlaup Sjálf­stæðismanna í borg­inni öðru vísi en að þau öf­undi Fram­sókn fyr­ir að hafa náð að setja svona ræki­lega mark sitt á rekst­ur borg­ar­inn­ar sem skil­ar já­kvæðri rekstr­arniður­stöðu á borg­ar­sjóði í fyrsta skipti í fimm ár.“

Mestu máli skipti núna að nýr meiri­hluti í borg­inni missi ekki tök­in á rekstr­in­um og eyði um efni fram, seg­ir Ein­ar að lok­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert