Hæstiréttur sýknar Samkeppniseftirlitið

Samskip vildu láta ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem fól í …
Samskip vildu láta ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem fól í sér að kæru fyrirtækisins yrði vísað frá nefndinni. Ljósmynd/Samskip

Hæstirétt­ur staðfesti í dag niður­stöðu Lands­rétt­ar um að sýkna Sam­keppnis­eft­ir­litið af kröfu Sam­skipa. Lands­rétt­ur hafði sýknað Sam­keppnis­eft­ir­litið í sept­em­ber.

Sam­skip vildu láta ógilda úr­sk­urð áfrýj­un­ar­nefnd­ar sam­keppn­is­mála sem fól í sér að kæru fyr­ir­tæk­is­ins yrði vísað frá nefnd­inni.

Sam­skip kærði til nefnd­ar­inn­ar ákvæði í sátt sem Eim­skip gerði í júní árið 2021 við SKE. Í sátt­inni viður­kenndi Eim­skip sam­ráð við Sam­skip, féllst á að greiða sekt og skuld­batt sig til að hætta öllu viðskipta­legu sam­starfi við Sam­skip.

Í kær­unni krafðist Sam­skip þess að skuld­bind­ing­ar Eim­skips um að hætta öllu viðskipta­legu sam­starfi við Sam­skip yrðu felld­ar úr gildi.

Héraðsdóm­ur dæmdi Sam­skip í vil

Í til­kynn­ingu á vef SKE, þar sem frá þessu er grein, seg­ir að áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafi vísað kær­unni frá þar sem Sam­skip hefði ekki lögv­arða hags­muni af úr­lausn um skuld­bind­ing­ar í sátt Eim­skips.

Sam­skip stefndi Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu fyr­ir Héraðsdóm Reykja­vík­ur, sem dæmdi fyr­ir­tæk­inu í vil. Sam­keppnis­eft­ir­litið áfrýjaði dómn­um til Lands­rétt­ar sem sýknaði SKE. Hæstirétt­ur hef­ur nú staðfest þá niður­stöðu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert