Áfram verður besta veðrið á norðaustanverðu landinu en þar verður bjartviðri og hitinn þar gæti náð 20 stigum. Sunnan heiða verða sunnan 10-18 m/s með rigningu eða súld en eftir hádegi dregur úr vindi. Það verða skúrir vestanlands en rigning sunnanlands. Hitinn verður á bilinu 7 til 20 stig.
Á morgun verður sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning með köflum, en áfram þurrt um landið norðaustanvert. Hitinn verður á bilinu 5 til 14 stig, hlýjast á Austurlandi.