Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur setti í dag heilsu- og hvatningarátakið Hjólað í vinnuna af stað með athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Ásamt Heiðu settu átakið af stað þau Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Náttúruverndarstofnunar, María Ögn Guðmundsdóttir, Íslandsmeistari í götuhjólreiðum, og Andri Stefánsson framkvæmdarstjóri ÍSÍ.
Heiða minntist á að mikið væri lagt upp úr að bæta innviði fyrir hjólandi vegfarendur í borginni.
Í grein á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að nú séu sérstakir hjólastígar í Reykjavík samtals orðnir um 45 km að lengd.
Áætlað er að hjólastígum fjölgi einnig á næstu árum í ákveðnum hverfum. Er sú vinnan unnin með hliðsjón af Borgarlínuverkefninu.
„Ég vil þakka ÍSÍ fyrir þetta frábæra framtak sem Hjólað í vinnuna er, því það er svo miklu meira en bara hvatning fyrir fólk að fara út og hreyfa sig, þetta er ekki síður umhverfisvænt hópefli sem stuðlar að skemmtilegri stemmningu á vinnustöðum um allt land. Og það eru alltaf einhverjir í kjölfarið sem ákveða að stíga skrefið til fulls,og bætast í hóp hjólafólks árið um kring,“ sagði borgarstjóri.