Mótmæla plássleysi í einhverfudeildum

Klettaskóli getur ekki boðið öllum börnum pláss.
Klettaskóli getur ekki boðið öllum börnum pláss. mbl.is/Hari

„Ár eft­ir ár ber­ast frétt­ir af því hversu mörg börn fá ekki inni í ein­hverfu­deild­um, og nú hef­ur í tvö ár í röð verið synjað börn­um í Kletta­skóla,“ seg­ir í und­ir­skrift­arlista sem efnt var til í þeim til­gangi að vekja at­hygli á stöðu mála í Kletta­skóla og víðar. 785 hafa skrifað und­ir list­ann síðan hann var stofnaður.

Sara Rós Krist­ins­dótt­ir, for­eldri barns með ein­hverfu, kom und­ir­skrift­arlist­an­um á fót til að vekja at­hygli á pláss­leysi í ein­hverfu­deild­um í grunn­skól­um í Reykja­vík. „List­inn var stofnaður í raun og veru vegna þess að ég hef sjálf verið í þess­ari stöðu sem for­eldri. Ég er búin að hitta svo ofboðslega marga for­eldra sem eru í sömu stöðu. Þetta eru auðvitað alls kon­ar börn, en mörg þeirra eru í sárri neyð að kom­ast í gott úrræði sem ekki all­ir grunn­skól­ar geta boðið upp á.“

Fyr­ir haustið 2025 voru 17 laus pláss í ein­hverfu­deild­um Reykja­vík­ur­borg­ar. 47 um­sókn­ir bár­ust og 26 börn sem upp­fylltu inn­töku­skil­yrði. 

Í Kletta­skóla voru 14 laus pláss fyr­ir kom­andi skóla­ár. Alls bár­ust 53 um­sókn­ir og 28 börn upp­fylltu inn­töku­skil­yrði. Sara seg­ir að marg­ir for­eldr­ar sæki ekki um í ein­hverfu­deild, vegna þess að það sé um­talað að það sé mikið pláss­leysi.

For­eldr­ar barna í Kletta­skóla telja þessa þróun al­var­lega sem hef­ur gríðarleg áhrif á líf barna og fjöl­skyldna þeirra.

„Þó að það sé nátt­úru­lega frá­bært að það væri góð inn­gild­ing eins og með skóla án aðgrein­ing­ar, og við vilj­um al­veg skóla án aðgrein­ing­ar ef það myndi ganga vel, við vilj­um það al­veg. Það þarf samt líka kannski að vera þetta val,“ seg­ir Sara.

For­eldr­ar og grasrót­ar­sam­tök hafa ít­rekað bent á vand­ann í Kletta­skóla og hef­ur það borið lít­inn ár­ang­ur. Óásætt­an­legt sé að hóp­ur barna sem þarfn­ast stuðnings fái synj­un um aðgengi að viðeig­andi úrræðum sök­um pláss­leys­is.

For­eldr­ar við Kletta­skóla krefjast þess að sett­ar verði á lagg­irn­ar fleiri ein­hverfu­deild­ir í grunn­skól­um ásamt því að Kletta­skóli verði stækkaður. For­eldr­ar óska eft­ir því að Reykja­vík­ur­borg efni lof­orð um fleiri þátt­töku­bekki inn­an skól­ans ásamt því að önn­ur sveit­ar­fé­lög opni sér­skóla til að mæta ólík­um þörf­um barna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert