Myndir: Biðja fyrir kardínálunum í páfakjöri

Messa fyrir páfakjör var sungin í Dómkirkju Krists konungs í …
Messa fyrir páfakjör var sungin í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Boðað var til messu í Kaþólsku kirkj­unni í dag til að biðja fyr­ir kardí­nál­un­um sem kjósa nýj­an páfa en páfa­kjör hófst í Sixtínsku kap­ell­unni í Róm síðdeg­is í dag.

„Kardí­nál­ar Kaþólsku kirkj­unn­ar eru nú komn­ir sam­an til að kjósa nýj­an páfa. Það er hlut­verk þeirra. En sjálfsagt þarfn­ast þeir hjálp­ar og aðstoðar okk­ar og þess vegna lang­ar mig inni­lega að biðja alla kaþól­ikka í bisk­ups­dæm­inu okk­ar og einnig allt fólk sem hef­ur góðan vilja, ég vil biðja ykk­ur að sýna þeim stuðning í þessu mik­il­væga verk­efni,“ sagði Dav­id Terner í boðskap sín­um vegna páfa­kjörs­ins. 

Ekki er ljóst hvenær kjör páfans verða ljós en kardí­nál­arn­ir kjósa um nýj­an páfa tvisvar á dag. Fram­vinda kosn­ing­anna er gef­in til kynna með reyk frá strompi kap­ell­unn­ar þegar kjör­seðlar kardí­nál­anna eru brennd­ir. Svart­ur reyk­ur merk­ir að eng­in niðurstaða hafi náðst en hvít­ur að nýr páfi hafi verið val­inn. 

Svart­ur reyk­ur kom frá strompi kap­ell­unn­ar á sjötta tím­an­um í dag og mun at­kvæðagreiðsla halda áfram á morg­un. 

David Tencer Reykjavíkurbiskup fór fyrir messunni.
Dav­id Tencer Reykja­vík­ur­bisk­up fór fyr­ir mess­unni. mbl.is/​Eyþór Árna­son
Farið með bæn fyrir páfakjörinu.
Farið með bæn fyr­ir páfa­kjör­inu. mbl.is/​Eyþór Árna­son





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert