Hafdís Bára Óskarsdóttir, sem Jón Þór Dagbjartsson er ákærður fyrir að hafa reynt að bana, bar vitni fyrir Héraðsdómi Austurlands í dag. Jón Þór er sakaður um að hafa veist að henni með rúllubaggateini og notað hann til að stinga hana í kviðinn og þrengja að hálsi hennar.
Hafdís segir að Jón hafi verið sá rólegasti við árásina. Hún lýsti langvarandi ofbeldi af hálfu Jóns fyrir dóminum í dag.
Aðalmeðferð í málinu hófst í dag en árásin sem Jón er ákærður fyrir átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að Hafdísi var synjað um nálgunarbann á Jón. Ákæran er í nokkrum liðum en Jón er einnig ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi.
Árásin átti sér stað í skemmu við bæinn Hámundastaði IV í Vopnafirði hinn 16. október í fyrra.
Hafdís lýsti því fyrir dómi að hún hafi verið að taka til í skemmunni og henda út dóti þegar Jón bar að garði. Fólkið var áður í sambúð og á saman einn son. Er Jón sagður hafa spurt Hafdísi hvað hún væri að gera og hún svarað því að hún væri að henda út dóti sem hefði átt að vera búið að taka fyrir löngu.
Hafdís lýsir því að þau hafi átt frekari orðaskipti áður en árásin átti sér stað og að Jón hafi verið sá rólegasti í þeim samtölum. Sagði hún við hann að þau þyrftu að „klára þetta“ og átti hún þá við skilnaðinn. Lýsir hún því að í kjölfarið hafi Jón teygt sig í rúllubaggatein og byrjað að stinga hana í kviðinn áður en hún féll og hann þrengdi að hálsi hennar.
Í fyrstu reyndi Hafdís að öskra á hjálp í von um að einhver myndi heyra í henni en hún reyndi fljótlega að tala um son þeirra til að fá hann til að hætta en það virtist ekki stöðva hann.
Sagði Hafdís við hann „þú ert að drepa mig“ og svaraði Jón því játandi.
Hafdís segist ekki vita hvers vegna Jón hætti árásinni en hún sá fljótlega vinkonu sína hlaupa að sér.
Hafdís lýsti því að hún glímdi við mikla andlega erfiðleika eftir árásina þar sem hún væri oft óörugg og væri alltaf á varðbergi. Hún hefur einnig verið í endurhæfingu á Reykjalundi vegna áverka sem ollu taugaskaða í hægri handlegg hennar.
Vinkonan sem kom að Hafdísi eftir árásina bar einnig vitni fyrir héraðsdómi í dag og var frásögn hennar að mestu leyti í samræmi við frásögn Hafdísar. Hún lýsti því að hún hafi haldið að Hafdís væri látin þegar hún sá hana liggjandi á skemmugólfinu. Hún náði ekki sambandi við Hafdísi fyrr en hún fór að „pota“ í hana.
Sagði vinkonan einnig frá því að hún hafi rætt við Jón eftir árásina þar sem hann er sagður hafa sagst ætla kála Hafdísi, en síðar dregið það til baka því hann elskaði hana. Lögreglumaður sem bar einnig vitni fyrir dómi segir að í upptöku á öryggismyndavél hafi heyrst í Jóni segja við vinkonuna: „Ég ætla segja þér það, ég ætlaði að kála henni.“
Hafdís lýsti einnig sambandi hennar og Jóns fyrir dómi sem hún segir að hafi byrjað vel en að fljótlega hafi komið í ljós erfiðleikar. Ræddi hún að Jón ætti það til að taka skapofsaköst og hvernig hann hafði þrýst á hana um kynlíf sem hún hafi látið undan, líka eftir að sambandinu lauk.
Aðalmeðferð málsins heldur áfram á morgun.