Viðkvæm persónugögn sem teljast til rannsóknargagna lögreglu og gögn sem embætti sérstaks saksóknara aflaði með dómsúrskurði voru meðal þeirra gagna sem fyrirtækið PPP ehf. hafði í fórum sínum. Héraðssaksóknari segir gögnin stolin og að þau hefðu ekki átt að fara út fyrir dyr saksóknaraembættisins.
Fyrirtækið var stofnað af lögreglumönnunum Jóni Óttari Ólafssyni afbrotafræðingi og Guðmundi Hauki Gunnarssyni lögfræðingi, en þeir voru þá starfsmenn embættis sérstaks saksóknara.
Í síðustu viku greindi fréttaskýringaþátturinn Kveikur frá umfangsmiklum njósnum PPP fyrir Björgólf Thor Björgólfsson vegna málsóknar fyrrverandi hluthafa Landsbankans. Var meðal annars njósnað um forsvarsmenn málsóknarinnar og lögmannsstofur. Þá var greint frá því að núverandi lögreglumaður hefði á vinnutíma einnig tekið þátt í eftirliti fyrir PPP og fengið greitt fyrir það.
Sagði Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari við mbl.is í síðustu viku að hann væri í hálfgerðu áfalli eftir umfjöllunina og að þeir Jón Óttar og Guðmundur hefðu lengi verið grunaðir um að hafa stolið gögnum frá embættinu. Eftir rannsókn á málinu var það fellt niður af ríkissaksóknara. Embættið hefur hins vegar tekið verk þeirra til rannsóknar á ný.
Rætt verður við Ólaf í Kastljósi í kvöld og er það framhald af fyrri umfjöllun Kveiks, en nýjar upplýsingar sýna að PPP hafði mikið magn gagna frá saksóknaraembættinu undir höndum. Er haft eftir Ólafi að engin fordæmi séu um að eins umfangsmiklum gögnum hafi verið stolið frá embættinu og í tilfelli PPP.
Segir Ólafur að um sé að ræða gögn sem hefðu aldrei átt að fara úr húsi embættisins.