Lögreglustjórinn á Suðurlandi fór í dag fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þremur karlmönum vegna rannsóknar á máli er varðar meinta frelsissviptingu, fjárkúgun og manndráp sem upp kom 10. mars síðastliðinn.
Þetta staðfestir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is en maður á sjötugsaldri fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést á sjúkrahúsi stuttu síðar.
Gæsluvarðhald yfir mönnum á að renna út í dag. Á tímabili voru sjö í varðhaldi vegna málsins en fjórum var sleppt.
Sveinn Kristján segir að rannsókn málsins miði vel og hún sé langt komin en enn sé þó verið að afla gagna í málinu.