Ríflega fimmtungur starfsfólks á vinnumarkaði í löndum Evrópusambandsins segist venjulega vinna eitthvað um helgar. Samkvæmt tölum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, var algengt að 22,4% starfandi fólks á vinnumarkaði í Evrópu væru við störf á laugardögum og/eða sunnudögum á seinasta ári. Mikill munur er þó á milli landa.
Íslendingar hafa iðulega skorið sig úr í samanburði á vinnutíma og langri starfsævi meðal Evrópuþjóða, þar sem meðalvinnutími hefur verið langur hér á landi og starfsævin ein sú lengsta, en í nýjum samanburði Eurostat á helgarvinnu skipar Ísland sér ekki í hóp efstu landa.
Á seinasta ári unnu um 14% launþega á íslenskum vinnumarkaði venjulega á laugardögum og/eða sunnudögum og um 24% sjálfstætt starfandi einstaklinga sem eru með starfsfólk í vinnu, eða alls að jafnaði rúmlega 15% starfandi fólks, samkvæmt tölum Eurostat. Til samanburðar unnu 22,7% launþega og 42,7% sjálfstætt starfandi í Noregi venjulega um helgar.
Hlutfall þeirra sem vinna venjulega um helgar hér á landi hefur farið lækkandi á umliðnum árum, skv. Eurostat, þeir voru til að mynda um 21% árið 2017 og 19% árið 2020.
Leiðrétt:
Kort sem fylgdi fréttinni í Morgunblaðinu i dag var ekki með réttum tölum um hlutfall launþega í helgarvinnu, en hér birtist rétta útgáfan.