Borgin hækkar framlag til sjálfstætt starfandi skóla

Kostnaðarauki Reykjavíkurborgar vegna þessa er áætlaður 134 milljónir króna á …
Kostnaðarauki Reykjavíkurborgar vegna þessa er áætlaður 134 milljónir króna á ársgrundvelli. mbl.is/Karítas

Reykja­vík­ur­borg hef­ur hækkað fram­lag til sjálf­stætt starf­andi skóla með nýj­um samn­ingi.

Sam­kvæmt hon­um verður fram­lag borg­ar­inn­ar til skól­anna 80% í stað 70-75% af heild­ar­kostnaði á hvern nem­anda, óháð fjölda. Kostnaðar­auki Reykja­vík­ur­borg­ar vegna þessa er áætlaður 134 millj­ón­ir króna á árs­grund­velli.

Fram­lagið er miðað við 80% af vegnu meðaltali heild­ar­rekstr­ar­kostnaðar allra grunn­skóla sem rekn­ir eru af sveit­ar­fé­lög­un­um á hvern nem­enda sam­kvæmt út­reikn­ingi Hag­stofu Íslands. Þá er pró­sentu­hlut­fall ekki leng­ur lækkað fyr­ir skóla sem telja fleiri en 200 nem­end­ur eins og var í eldri samn­ing­um.

Samn­ing­ur­inn, sem gild­ir aft­ur­virkt til 1. janú­ar og út næsta ár, hef­ur verið samþykkt­ur í borg­ar­ráði og und­ir­ritaður af öll­um skól­un­um.

„Und­ir­rit­un þessa sam­komu­lags er fagnaðarefni og mik­il­vægt að þetta góða starf haldi áfram því það er svo sann­ar­lega dýr­mætt fram­lag til mennt­un­ar barna í borg­inni og ég er sann­færð um að þetta styrki enn frek­ar okk­ar góða sam­starf,“ er haft eft­ir Heiðu Björgu Hilm­is­dótt­ur borg­ar­stjóra í til­kynn­ingu borg­ar­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert