Fyrsta skipti sem að flæddi yfir túnin

Héraðsvötn flæddu yfir tún í Skagafirði í vatnavöxtunum.
Héraðsvötn flæddu yfir tún í Skagafirði í vatnavöxtunum. Ljósmynd/Davíð Logi Jónsson

Héraðsvötn í Skagaf­irði flæddu yfir bakka sína og yfir tún á svæðinu í mikl­um vatna­vöxt­um í gær­kvöldi og nótt. Bóndi á Skagaf­irði seg­ir að flóðin komi til með að seinka jarðvinnslu um ein­hverj­ar vik­ur.

Mikl­ir vatna­vext­ir voru í nokkr­um ám og fljót­um á Norður­landi í gær og sendi al­manna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra út viðvör­un vegna vaxta í Aust­ari-Jök­ulsá og Héraðsvötn­um í Skagaf­irði.

Davíð Logi Jóns­son er bóndi á Egg en jörð hans nær að bökk­um Héraðsvatna.

„Það er búið að flæða hérna yfir bakka og yfir á tún, á kafla er líka varn­argarður hér hjá okk­ur og það var farið að flæða aðeins yfir hann,“ seg­ir Davíð um vatna­vexti næt­ur­inn­ar.

Aldrei flætt yfir tún­in áður

Spurður hvort þetta séu meiri vext­ir en í hefðbundn­um vor­leys­ing­um seg­ir Davíð:

„Þetta er vissu­lega ár­legt en þetta er samt með meira móti, eins og vatna­mæl­ing­ar sýndu í gær og í nótt. Það er hérna land hjá okk­ur sem flæðir nú yfir sem aldrei hef­ur flætt yfir áður okk­ur að vit­andi, að minnsta kosti ekki í 13 ár.“

Þá seg­ir Davíð að sem bet­ur fer hafi hann ekki þurft að gera nein­ar sér­stak­ar ráðstaf­an­ir vegna flóðanna en aðrir hafi ekki verið jafn heppn­ir.

„Við erum ekki með nein­ar skepn­ur við vötn­in á þess­um tíma. Ég veit hins veg­ar að í gær­kvöldi voru bænd­ur að senda viðvör­un­ina frá al­manna­vörn­um á milli sín og ef þeir voru með hross á Mýr­un­um eða eitt­hvað slíkt áttu þeir að reyna að taka þau heim. Menn voru að gera það víða í Skagaf­irði. “

Fræið drukkn­ar

Spurður hvort eitt­hvað tjón hafi orðið vegna vatna­vaxt­anna seg­ir Davíð:

„Hjá okk­ur er þannig séð ekk­ert tjón. Það er hins veg­ar þannig að þau tún sem hef­ur flætt yfir, það eru tún sem við rækt­um upp aft­ur ár eft­ir ár en núna seink­ar því. Ég ætlaði kannski að plægja þetta í vik­unni en núna verður þetta renn­andi blautt næstu tvær til fjór­ar vik­urn­ar. Þannig seink­ar allri jarðvinnslu á þess­um svæðum.“

„Svo veit ég að aðeins sunn­ar í firðinum eru tún sem búið var að sá korni í og setja áburð á en svo er bara búið að flæða yfir þau. Þar lenda menn nátt­úru­lega í tjóni þar sem fræið drukkn­ar og áburður­inn skol­ast í burtu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert