Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti nýverið að lóðin að Hvaleyrarbraut 22 félli til bæjarins en bygging á lóðinni brann í ágúst 2023. Lóðarleigusamningur er útrunninn og hafði ekki verið endurnýjaður þegar bruninn varð.
Í bókun bæjarráðs kemur fram að bærinn hyggst fylgja málinu eftir í samræmi við 6. gr. í lóðarleigusamningi þar sem gert er ráð fyrir að lóðin falli til bæjarins hafi húsnæðið eyðilagst og ekki verið byggt upp að nýju. Í breyttu aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir íbúðum og þjónustu á þessu svæði við Hvaleyrarbraut.
Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að lóðarhafar hafi óskað eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi, sem var hafnað á þeim forsendum að verið væri að endurskoða aðalskipulag bæjarins.
„Bærinn nýtir sér ákvæði í lóðarleigusamningi um að ef brennur á lóðinni þá gangi lóðin á ný til sveitarfélagsins þar sem samningurinn er útrunninn. Tryggingar hafa bætt það sem brann og bærinn nýtir sér heimild í lóðarleigusamningi til að taka lóðina til sín við lok leigutíma.“
Stendur þá til að semja við þá lóðarhafa sem sluppu við brunann en ekki við þann sem missti eign í eldsvoða?
„Nei, í rauninni er verið að kalla lóðina inn í heild, óháð því hvort það brann eða brann ekki. Það verður síðan í höndum lögfræðinga að skýra hvernig réttur þess sem á heila eign liggur gagnvart bænum og svo réttur bæjarins gagnvart þeim.“
Er verið að mismuna aðilum?
„Ég tel ekki svo vera. Við nýtum okkur ákvæði í lóðarleigusamningi en svo verður úr því skorið á réttum vettvangi á næstu misserum. Það er ekki ætlun bæjarins að mismuna einum né neinum, heldur eingöngu verið að koma þessu máli áfram með þeim leiðum sem við höfum. Að kalla lóð með útrunnum leigusamningi til okkar út frá ákvæðum um brunalóð er ein af þeim leiðum sem við höfum.“
Spurður hvort það sé viðtekin venja að bærinn leysi lóðir til sín við lok leigusamnings segir Valdimar svo ekki vera.
„Það hefur ekki verið venjan að fara þá leið en það er heimild fyrir því. Við þurftum að ná niðurstöðu í þessu máli og það var niðurstaða bæjarráðs að virkja þessa grein. Það hefur verið ákveðin slysahætta af þessari lóð og nú verður farið í hreinsun.“
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.