Kólnandi veður í kortunum - Éljahryðjur á morgun

Það er smá vorhret í kortunum.
Það er smá vorhret í kortunum. mbl.is/Styrmir Kári

Kald­ara loft frá Labra­dor­hafi nálg­ast landið og hiti fell­ur því smám sam­an. Í dag verða suðvest­an 5-13 m/​s. Það verður væta vest­an til á land­inu en bjartviðri um landið norðaust­an­vert.

Eft­ir há­degi verður úr­komum­inna sunn­an heiða en áfram þurrt um landið norðaust­an­vert. Hit­inn verður á bil­inu 5 til 15 stig og verður hlýj­ast á Norðaust­ur- og Aust­ur­landi. Það kóln­ar held­ur í kvöld.

Á morg­un hvess­ir og ger­ir jafn­vel all­hvass­an vind með skúra- eða élja­hryðjum nokkuð víða, en um norðaust­an­vert landið helst úr­komu­laust að mestu.

Í hug­leiðing­um veður­fræðings seg­ir að veður­lag hald­ist síðan vænt­an­lega áfram út föstu­dag­inn til laug­ar­dags­morg­uns og gera megi ráð fyr­ir versn­andi akst­urs­skil­yrðum á Vest­ur­landi, Vest­fjörðum, Strönd­um og Norðvest­ur­landi, þar sem dimm él ganga yfir og hálku­blett­ir mynd­ast, einkum á fjall­veg­um.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert