Sérsveitin aðstoðar lögregluna í Kópavogi

Sér­sveit­in er sögð hafa mætt með sér­hæft tæki sem notað …
Sér­sveit­in er sögð hafa mætt með sér­hæft tæki sem notað er til að brjóta upp hurðir. Ljósmynd/Aðsend

Lög­regl­an og sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra fór í aðgerð í fjöl­býl­is­húsi í efri byggð Kópa­vogs rétt upp úr klukk­an tvö í dag.

Að sögn sjón­ar­votta komu tveir sér­sveit­ar­bíl­ar og einn merkt­ur lög­reglu­bíll á vett­vang.

Sér­sveit­in er sögð hafa mætt með sér­hæft tæki sem notað er til að brjóta upp hurðir. Lög­reglu­menn hafi þá farið á bak við húsið og fjór­ir sér­sveit­ar­menn farið inn í húsið.

Tíu mín­út­um seinna var einn maður leidd­ur út í járn­um.

Lögreglan á vettvangi.
Lög­regl­an á vett­vangi. Ljós­mynd/​Aðsend
Maðurinn leiddur í burtu í járnum
Maður­inn leidd­ur í burtu í járn­um Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert