Sigurður dæmdur í átta ára fangelsi

Sexmenningarnir sem allir hafa neitað sök eru ákærðir fyrir skipulagða …
Sexmenningarnir sem allir hafa neitað sök eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sem ákærðu sammæltust um að fremja. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/mbl.is/Eggert

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hef­ur dæmt Sig­urð Krist­ins­son í átta ára fang­elsi fyr­ir það sem kallað hef­ur verið stærsta kristal metam­feta­mín­mál Íslands­sög­unn­ar.

Meðákærðu Ag­urim Xixa, Bald­ur Þór Sig­urðar­son, Sig­fús Berg­mann Svavars­son og Elsa Ruth Ró­berts­dótt­ir munu einnig sæta fang­elsis­vist en maður sem í dómn­um er nefnd­ur Y hef­ur verið sýknaður af kröf­um ákæru­valds­ins.

Sex­menn­ing­arn­ir sem all­ir hafa neitað sök voru ákærðir fyr­ir skipu­lagða brot­a­starf­semi og stór­fellt fíkni­efna­laga­brot, sem ákærðu sam­mælt­ust um að fremja. Stóðu þau sam­an að inn­flutn­ingi á 5.733,60 g af metam­feta­mín kristöll­um, ætluðum til sölu­dreif­ing­ar hér á landi. Efn­in voru fal­in í bif­reið af gerðinni Daimler Dou­ble Six sem kom til Þor­láks­hafn­ar 11. októ­ber með flutn­inga­skip­inu Myk­ines frá Rotter­dam í Hollandi.

Lög­regla lagði hald á fíkni­efn­in og skipti þeim út fyr­ir gervi­efni áður en bif­reiðin var af­hent þeim Sig­fúsi, Baldri og Y þann 24. októ­ber og færðu þeir Ag­urim bif­reiðina í Reykja­vík þar sem hann reyndi ár­ang­urs­laust að fjar­lægja efn­in úr bif­reiðinni. Dag­inn eft­ir flutti hann bif­reiðina, ásamt Sig­urði, að hest­húsa­hverfi þar sem Sig­urður rétti Ag­urim og Elsu efn­in og báru þau efn­in inn í nær­liggj­andi hest­hús.

Hef­ur verið sak­felld­ur áður

Sig­urður hef­ur hef­ur áður verið sak­felld­ur fyr­ir stór­felld fíkni­efna- og skatta­laga­brot. 

Héraðsdóm­ur Reykja­ness dæmdi hann í 20 mánaða skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir meiri hátt­ar skatta­laga­brot í rekstri verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins SS verks ehf. árið 2018 og var hon­um gert að greiða 137 millj­óna króna sekt til rík­is­sjóðs.

Árið 2019 var hann dæmd­ur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Héraðsdómi Reykja­vík­ur fyr­ir aðild að Skák­sam­bands­mál­inu svo­kallaða.

Lög­regla hafði fylgst með ferðum ákærðu

Fram kem­ur í dómn­um að máls­at­vik séu að mestu óum­deild og að á meðal helstu sönn­un­ar­gagna séu sam­tíma­gögn með hljóðupp­tök­um af sam­töl­um ákærðu, mynd­bands­upp­tök­um, ljós­mynd­um og upp­tök­um af sím­töl­um milli ákærðu, sem gefi glögga mynd af at­b­urðarás­inni.

Þannig aflaði lög­regla m.a. dóms­úrsk­urða sem veittu heim­ild til þess að koma fyr­ir hljóð- og myndupp­töku­búnaði und­ir Daimler­bif­reiðinni og enn frem­ur var komið fyr­ir hljóðupp­töku­búnaði í bif­reið ákærða Sig­fús­ar sem hann og ákærðu Bald­ur og Y héldu til í.

Hafði lög­regla því fylgst náið með ferðum ákærðu allt frá því Daimler-bif­reiðin kom til lands­ins 11. októ­ber 2024 og þar til þeir voru hand­tekn­ir 25. októ­ber.

Niður­stöður dóms­ins

Sig­urður Krist­ins­son hef­ur verið dæmd­ur í átta ára fang­elsi og er gert að greiða þrjá fjórðu hluta sak­ar­kostnaðar, sam­tals 9.229.714 krón­ur, þar með talda þrjá fjórðu hluta mál­svarn­ar­launa skipaðs verj­anda hans, Hilm­ars Magnús­son­ar lög­manns, 5.674.860 króna, og þrjá fjórðu hluta ann­ars sak­ar­kostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Ag­urim, Baldri og Sig­fúsi, en einn fjórði hluti sak­ar­kostnaðar greiðist úr rík­is­sjóði.

Meðákærði, Ag­urim Xixa, hef­ur verið dæmd­ur í fimm og hálfs árs fang­elsi og gert að greiða þrjá fjórðu hluta sak­ar­kostnaðar sem er sam­tals 9.335.310 krón­ur, þar með talda þrjá fjórðu hluta mál­svarn­ar­launa skipaðs verj­anda hans, Snorra Sturlu­son­ar lög­manns, 5.674.860 króna, auk þrjá fjórðu hluta akst­urs­kostnaðar, 105.596 króna, og þrjá fjórðu hluta ann­ars sak­ar­kostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Baldri, Sig­fúsi og Sig­urði, en einn fjórði hluti sak­ar­kostnaðar greiðist úr rík­is­sjóði.

Bald­ur Þór Sig­urðar­son hef­ur verið dæmd­ur í fjög­urra ára fang­elsi og gert að greiða þrjá fjórðu hluta sak­ar­kostnaðar sem er sam­tals 9.338.140 krón­ur, þar með talda þrjá fjórðu hluta mál­svarn­ar­launa skipaðs verj­anda hans, Inga Freys Ágústs­son­ar lög­manns, 5.766.930 króna, auk þrjá fjórðu hluta akst­urs­kostnaðar, 16.356 króna, og þrjá fjórðu hluta ann­ars sak­ar­kostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Ag­urim, Sig­fúsi og Sig­urði, en einn fjórði hluti sak­ar­kostnaðar greiðist úr rík­is­sjóði.

Sig­fús Berg­mann Svavars­son hef­ur verið dæmd­ur í þriggja og hálfs árs fang­elsi og gert að greiða þrjá fjórðu hluta sak­ar­kostnaðar, sam­tals 9.849.094 krón­ur, þar með talda þrjá fjórðu hluta mál­svarn­ar­launa skipaðs verj­anda hans, Evu Dóru Kol­brún­ar­dótt­ur lög­manns, 6.294.240 króna, og þrjá fjórðu hluta ann­ars sak­ar­kostnaðar, 3.554.854 króna, með ákærðu Ag­urim, Baldri og Sig­urði, en einn fjórði hluti sak­ar­kostnaðar greiðist úr rík­is­sjóði.

Elsa Ruth Ró­berts­dótt­ir hef­ur verið dæmd í 10 mánaða fang­elsi en fram kem­ur í dómn­um að fulln­ustu refs­ing­ar­inn­ar skuli frestað. Komi til afplán­un­ar skal gæslu­v­arðhald drag­ast frá refs­ing­unni, líkt og hjá meðákærðum. Þá er henni gert að greiða mál­svarn­ar­laun skipaðs verj­anda henn­ar, Þorgils Þorgils­son­ar lög­manns, 3.509.820 krón­ur, að meðtöld­um virðis­auka­skatti.

Maður sem nefnd­ur er Y í dómn­um hef­ur verið sýknaður af kröf­um ákæru­valds­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert