Andlát: Vilhjálmur Rafnsson

Vilhjálmur Rafnsson.
Vilhjálmur Rafnsson.

Vil­hjálm­ur Rafns­son, lækn­ir og pró­fess­or em­irit­us, lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans 4. maí síðastliðinn, 79 ára að aldri.

Vil­hjálm­ur fædd­ist í Reykja­vík 29. ág­úst 1945. For­eldr­ar hans voru Hulda Vil­hjálms­dótt­ir Ol­geirs­son versl­un­ar­maður og Rafn Jóns­son tann­lækn­ir.

Vil­hjálm­ur varð stúd­ent frá MR árið 1966, lauk kandí­dats­prófi í lækn­is­fræði frá Há­skóla Íslands 1973 og stundaði sér­fræðinám í heim­il­is- og at­vinnu­lækn­ing­um við Gauta­borg­ar­há­skóla í Svíþjóð 1976-1981 og lauk sama ár doktors­prófi.

Vil­hjálm­ur var mik­ilsvirt­ur vís­indamaður og frum­kvöðull í að rann­saka þætti sem hafa áhrif á sjúk­dóma og heilsu. Hann starfaði sem lækn­ir í Svíþjóð og hér á landi, m.a. við Sa­hlgrenska og Rehnströmska í Gauta­borg. Hér á landi starfaði hann á Borg­ar­spít­al­an­um, Land­spít­al­an­um og var héraðslækn­ir í Ólafs­vík. Hann var yf­ir­lækn­ir Vinnu­eft­ir­lits­ins á ár­un­um 1982-1998 og stundaði kennslu og rann­sókn­ir í heil­brigðis­fræðum við Lækna­deild Há­skóla Íslands frá 1987, varð pró­fess­or í heil­brigðis- og far­alds­fræði 1997 og lét af störf­um 2015 vegna ald­urs.

Vil­hjálm­ur átti sæti í stjórn Fé­lags lækna­nema og var formaður Fé­lags ís­lenskra lækna um heilsu­gæslu í Svíþjóð um tveggja ára skeið. Hann átti sæti í rit­stjórn Lækna­blaðsins og var rit­stjóri þess 1993-2005. Hann var einnig rit­stjóri Nordisk Medic­in 1989-1997.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Vil­hjálms er Álf­heiður Steinþórs­dótt­ir sál­fræðing­ur, f. 1946. Syn­ir henn­ar og stjúp­syn­ir Vil­hjálms eru Arn­ór Björns­son, f. 1966, d. 1996, og Andri Steinþór Björns­son, pró­fess­or í sál­fræði við HÍ, f. 1973. Fyrri maki Vil­hjálms var Anna Ing­ólfs­dótt­ir, tón­list­armaður og þýðandi, f. 1946. Börn þeirra eru Linda verk­efna­stjóri, f. 1971, Þrúður leik­kona, f. 1973, og Ingólf­ur klar­in­ettu­leik­ari, f. 1976. Barna­börn­in eru fimm tals­ins.

Útför Vil­hjálms fer fram frá Dóm­kirkj­unni mánu­dag­inn 19. maí kl. 13.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert