Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu á mæðradaginn, sunnudaginn 11.maí klukkan 11.
Í Reykjavík hefst gangan á Háskólatorgi þar sem íslenskir vísindamenn, sem þegið hafa styrki frá félaginu, kynna störf sín.
Það er öllum velkomið að taka þátt í göngunni og er þátttaka í henni gjaldfrjáls.
Á svæðinu verður lúðrasveit og skemmtiatriði, og gefst þátttakendum kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á höfuðklútum félagsins.
Fólki gefst einnig færi á að skrá sig í félagið en nánari upplýsingar um það er að finna á heimasíðu félagsins.
Styrktarfélagið hefur verið í samstarfi við Brauð og CO síðastliðin sjö ár sem staðið hefur fyrir sölu á bleikum hindberjasnúðum fyrir gott málefni.
Í ár verða snúðarnir til sölu í bakaríum Brauð og CO út 11. maí og rennur allur ágóði sölunnar óskert til Göngum saman.
Markmið styrktarfélagsins er að afla fjár til styrktar grunnrannsókna á eðli og orsökum brjóstakrabbameins ásamt því að flýta fyrir bættri meðferð og auknum lífslíkum.
„Við vitum það að þessir styrkir hafa skipt alla þá rannsóknarhópa sem eru hérna töluvert miklu máli, bæði meistara- og doktorsnema,“ segir Linda Björk Ólafsdóttir, formaður Göngum saman.
Félagið var stofnað haustið 2007 og úthlutar það styrkjum í október ár hvert.
Frá stofnun þess hefur um 165 milljónum verið úthlutað í styrkjum til íslenskra rannsókna á brjóstakrabbameini.
Í haust stendur til að 15 milljónir renni til vísindarannsókna ásamt því að vísindasjóði hefur verið komið á fót og stendur hann í dag í 80 milljónum króna.
Styrktarfélagið Göngum saman er rekið af sjálfboðaliðum og er það fjármagnað með sölu á varning, framlögum og styrkjum. Rekstrarkostnaður félagsins er vart mælanlegur en áhersla er lögð á að framlög renni óskipt í styrktarsjóð félagsins.
„Þetta snertir svo marga brjóstakrabbamein, þessar rannsóknir eru langtímaverkefni en þetta skiptir allt svo miklu máli að fá alla saman, til þess að bæði vekja athygli á brjóstakrabbameini og þessari leit af lækningu sem er langhlaup. Einnig vegna þess að þetta hefur snert svo marga er gott að koma saman á mæðradaginn og bæði fagna þeim sem allt hefur gengið vel hjá og minnast þeirra sem krabbameinið hefur sigrað.“
Fleiri upplýsingar um gönguna má finna á vefsíðu göngum saman.