Fer að hlýna á sunnudag

Reikna má með éljagangi fram eftir degi.
Reikna má með éljagangi fram eftir degi. mbl.is/Árni Sæberg

Leiðinda­veðrið sem nú rík­ir á vest­an­verðu land­inu held­ur áfram eitt­hvað inn í helg­ina en á sunnu­dag ætti að hlýna. Þetta seg­ir Björn Sæv­ar Ein­ars­son, veður­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, í sam­tali við mbl.is.

„Það er leiðinda­veður, sér­stak­lega Vest­an­lands, og það held­ur áfram fram á nótt. Síðan dreg­ur veru­lega úr vindi en það verður áfram svalt og ein­hver slydduél,“ seg­ir Björn og bæt­ir við að Gul viðvör­un Veður­stof­unn­ar yfir Faxa­flóa og Breiðafjörð hafi verið fram­lengd til klukk­an þrjú í nótt og viðvör­un­in fyr­ir Norður­land vestra standi nú til klukk­an fimm.

„Annað kvöld verður síðan kom­in norðurátt hérna, ekki mjög kvöss, en þá verður élja­gang­ur á norðan­verðu land­inu og slydduél suðvest­an­lands og fryst­ir víða inn til lands­ins,“ seg­ir Björn.

13 – 20 stiga hiti Norðaust­an- og Aust­an­lands

Á sunnu­dag á svo að snúa í suðvest­læga átt og þá fer að hlýna á öllu land­inu.

„Svo lít­ur bara út fyr­ir ágæt­is veður Norðaust­an- og Aust­an­lands út vik­una, gæti al­veg orðið 13 – 20 stiga hiti,“ seg­ir Björn.

Spurður hvernig veður­horf­ur fyr­ir vest­an­vert landið séu fyr­ir næstu viku seg­ir hann:

„Það verður ekki mik­il úr­koma í þessu, það gæti verið skýjað eða skýjað með köfl­um og súld á stöku stað en hiti al­veg um 8-12 gráður.“

Svo það verður eng­inn élja­gang­ur í næstu viku?

„Nei, það er bara í dag og á morg­un.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert