#76. - Fulli frændinn úr veislunni settur í stjórn

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins tel­ur ekki úti­lokað að Flokk­ur fólks­ins skipi fulla frænd­an úr veislu síðustu helg­ar í stjórn­ir rík­is­fyr­ir­tækja. Þetta seg­ir hann í létt­um dúr. Formaður­inn er Hild­ur Sverr­is­dótt­ir en þetta kem­ur fram í Spurs­mál­um þar sem Sig­ríður Á. And­er­sen er einnig gest­ur en hún ger­ir stjórn­ar­skip­an­ir Ingu Sæ­land og Daða Más Kristó­fers­son­ar að um­tals­efni.

    Mikla at­hygli hef­ur vakið hvernig þess­ir tveir ráðherr­ar hafa haldið á stjórn­ar­skip­un­um að und­an­förnu. Fé­lags­málaráðherr­ann með því að brjóta jafn­rétt­is­lög og lög um Trygg­inga­stofn­un rík­is­ins en fjár­málaráðherr­ann með því að raða gæðinum Viðreisn­ar í stjórn­ir rík­is­fyr­ir­tækja und­ir því yf­ir­skini að þar sé um fag­leg­ar skip­an­ir að ræða.

    Sig­ríður og Hild­ur gefa lítið fyr­ir þetta en Sig­ríður seg­ir að póli­tísk­ar skip­an­ir eigi ekki aðeins rétt á sér. Þær séu í raun nauðsyn­leg­ar og eðli­leg­ar því all­ar skip­an­ir séu með ein­hverju móti póli­tísk­ar. 

    Rætt um viðkvæmt mál sr. Friðriks

    Æsku­lýðsfrömuður­inn sr. Friðrik Friðriks­son var felld­ur af stalli vegna meintra kyn­ferðis­brota. En var hann sek­ur? Það virðist mál­um blandið. Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í Spurs­mál­um dags­ins.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og YouTu­be, og er öll­um aðgengi­leg.

    Gögn sem ekki áður hafa sést

    Jón Magnús­son hæsta­rétt­ar­lögmaður hef­ur ásamt hópi fleiri manna sem kynnt­ust sr. Friðrik skoðað málið og þá hef­ur Morg­un­blaðið aflað gagna frá KFUM sem ekki hafa komið fyr­ir augu al­menn­ings áður.

    Prest­ur­inn felld­ur af stalli

    Rætt er við Jón í lok þátt­ar­ins um þetta mál sem skók ís­lenskt sam­fé­lagið árið 2023 og varð meðal ann­ars til þess að KFUM bað fórn­ar­lömb sr. Friðriks af­sök­un­ar. Stytta af prest­in­um var sömu­leiðis felld af stalli í Lækj­ar­götu og bæj­ar­stjórn Akra­nes­kaupstaðar íhugaði að svipta hinn löngu látna klerk heiðurs­borg­ara­titli.

    Páfa­kjör og átök kjarn­orku­velda

    Í frétt­um vik­unn­ar ber páfa­kjöri í Róm afar hátt en sömu­leiðis átök­in sem nú eru far­in að taka á sig al­var­legri mynd en áður milli Pak­ist­an og Ind­lands. Til að ræða þessi mál og fleiri mæta þau Urður Örlygs­dótt­ir og Odd­ur Þórðar­son til leiks. Þau eru bæði frétta­menn á Rík­is­sjón­varp­inu.

    Stjórn­ar­andstaða í stuði

    Til þess að ræða stjórn­mála­ástandið leggja þær Sig­ríður Á. And­er­sen, þingmaður Miðflokks­ins, og Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, orð í belg. Þar er af nægu að taka og ekki verður hjá því kom­ist að spyrja Hildi út í það hvort nýr formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, Guðrún Haf­steins­dótt­ir, hygg­ist skipta henni út sem þing­flokks­for­manni.

    Fylg­ist með Spurs­mál­um hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

    Oddur Þórðarson, Urður Örlygsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Jón Magnússon og Sigríður …
    Odd­ur Þórðar­son, Urður Örlygs­dótt­ir, Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, Jón Magnús­son og Sig­ríður Á. And­er­sen eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um. Sam­sett mynd/​mbl.is/​María Matth­ías­dótt­ir
    mbl.is
    Fleira áhugavert

    Innlent »

    Fleira áhugavert