Funda á mánudag: „Af hverju hefur aldrei verið leitað að þýfinu“

Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundað verður í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd á mánu­dag um stuld lög­reglu­manna á rann­sókn­ar­gögn­um. Svo seg­ir Vil­hjálm­ur Árna­son, formaður nefnd­ar­inn­ar.

Hann seg­ir að marg­ar spurn­ing­ar vakni um störf lög­reglu og sak­sókn­ara í tengsl­um við stuld lög­reglu­manna á gögn­um á eft­ir­hruns­ár­um.

Meðal ann­ars af hverju rík­is­sak­sókn­ari gerði ekki frek­ari til­raun til þess að hafa uppi á gögn­um sem grun­ur lék á um að hefði verið stolið eft­ir að sér­stak­ur sak­sókn­ari kærði Jón Óttar Ólafs­son og Guðmund Hauk Gunn­ars­son heit­inn árið 2012.

Gögn­um ekki eytt

Vil­hjálm­ur nefn­ir þrennt sem m.a. þurfi að leita svara við.

„Kerfið og rík­is­sak­sókn­ari hafa aldrei reynt að sækja þessi ólög­legu gögn. Af hverju hef­ur aldrei verið leitað að þýf­inu í hús­leit. Hvernig stend­ur á því?“ spyr Vil­hjálm­ur.

„Af hverju átti sér­stak­ur sak­sókn­ari all­ar þess­ar hler­an­ir sem tengd­ust ekk­ert mál­un­um. Af hverju var ekki búið að eyða þeim?“ spyr Vil­hjálm­ur.

Í þriðja lagi þá þarf að draga bet­ur í dags­ljósið að þetta voru líka gögn frá Lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu sem Kast­ljósið var að fjalla um. Þess­ir menn störfuðu líka þar,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

Hvað hef­ur ráðherra gert?

Eins þurfi að leita svara við því hjá Þor­björgu Sig­ríði Guðlaugs­dótt­ur dóms­málaráðherra hvort gripið hafi verið til aðgerða til þess að koma í veg fyr­ir að svona lagað end­ur­taki sig og hvort kerfi sé í stakk búið til að verðveita gögn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert