Hilmar heiðraður fyrir ævistarfið

Hilmar heldur hér á stýrinu góða.
Hilmar heldur hér á stýrinu góða. Ljósmynd/Landsbjörg

Hilm­ar Snorra­son, sem leiddi Slysa­varna­skóla sjó­manna í yfir 30 ár, var í dag heiðraður fyr­ir ævi­starf sitt á á Landsþingi Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar, sem var sett í dag á Sel­fossi.  

Borg­hild­ur Fjóla Kristjáns­dótt­ir, formaður Lands­bjarg­ar, af­henti Hilm­ari hluta úr stýri Sæ­bjarg­ar, skóla­skips, og hafði stýrið verið sett upp á sér­stak­an kop­ar-platta.

Þá fékk Hilm­ar viður­kenn­ing­ar­skjal með, og stend­ur á því eft­ir­far­andi texti:

„Hér er hluti af stýri Sæ­bjarg­ar, skóla­skipi Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar. Þar stóð í brúnni og stýrði ör­ygg­is­mál­um sjófar­enda, Hilm­ar Snorra­son. Fáir hafa haft jafn mik­il áhrif í þá veru að fækka al­var­leg­um slys­um og bana­slys­um á sjó og Hilm­ar. Það er ævi­starf sem vert er að þakka fyr­ir. Traust­um hönd­um hef­ur þú haldið um stjórn­völ­inn á slysa­vörn­um sjófar­enda í rúma þrjá ára­tugi og þannig stýrt þúsund­um sjófar­enda heil­um í höfn. Hafðu heila þökk fyr­ir.“

Í til­kynn­ingu frá Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björgu kem­ur fram að all­ir viðstadd­ir hafi risið úr sæt­um sín­um og heiðrað Hilm­ar þegar hann tók við viður­kenn­ing­unni.

Þar kem­ur einnig fram að á landsþing­inu á Sel­fossi eru nú sam­an­kom­in á annaðhundrað fé­laga Lands­bjarg­ar, og munu þeir kjósa fé­lag­inu nýja for­ystu yfir helg­ina.

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Landsbjargar, afhenti Hilmari stýrið ásamt sérstöku …
Borg­hild­ur Fjóla Kristjáns­dótt­ir, formaður Lands­bjarg­ar, af­henti Hilm­ari stýrið ásamt sér­stöku viður­kenn­ing­ar­skjali. Ljós­mynd/​Lands­björg
mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert