„Mér finnst þetta bara vera glæpastarfsemi“

Svokölluð brottfararrenna er reynin lengst til hægri. Fimm mínútur sem …
Svokölluð brottfararrenna er reynin lengst til hægri. Fimm mínútur sem fólk hefur til að athafna sig á svæðinu byrja að telja þegar keyrt er fram hjá hliðinu. Ljósmynd/Aðsend

„Þeir eru að stóla inn á það að fólk bara borgi. Það er verið að lauma inn þess­um smá­sekt­um og verið að reyna að hanka fólk á góðmennsku í þessu.“

Þetta seg­ir Atli Már Jóns­son í sam­tali við mbl.is en Atla barst reikn­ing­ur frá Isa­via vegna þess að hann hafði verið 90 sek­únd­um of lengi að at­hafna sig í „renn­unni“ við brott­far­ar­inn­gang­inn við Kefla­vík­ur­flug­völl, þar sem gjald­frelsi rík­ir fyrstu fimm mín­út­urn­ar.

mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Ég er ró­lynd­ismaður en þegar vegið er að mér verð ég mjög reiður og mér finnst þetta bara vera glæp­a­starf­semi. Ég skil ekki svona lagað, þetta býr bara til leiðindi,“ seg­ir Atli.

Þeir feðgar voru að fara í flug og það var óvana­lega mik­il um­ferð enda há­anna­tími. Atli náði að sögn að troða sér fram­ar í röðina og var því fljót­ari í gegn en hann ann­ars hefði verið.

„Við feðgarn­ir för­um svo út og kon­an tek­ur bíl­inn í bæ­inn. Svo ger­ist það mánuði seinna að það kem­ur reikn­ing­ur frá Isa­via upp á 1.990 krón­ur vegna 6 mín­útna stopps þarna í renn­unni.

Ég hringi suður eft­ir og spyr hvað sé í gangi. Þá er mér sagt að há­markið sé 5 mín­út­ur og það sé rukkað eft­ir það. Ég spyr hvort menn séu ekk­ert að grín­ast með það að rukka fólk af því það var einni mín­útu um­fram þess­ar fimm.

Eitt­hvað djók?

Þá sagði starfsmaður Isa­via að um væri að ræða eina mín­útu og þrjá­tíu sek­únd­ur. Þá fauk í mig og ég tapaði mér. Greyið strák­ur­inn var auðvitað ekk­ert sek­ur í þessu en þú spraut­ar ekki eld á mann sem er reiður fyr­ir,“ seg­ir Atli frá.

Seg­ist hann hafa spurt hvort um eitt­hvað djók væri að ræða því hann hefði ekk­ert getað gert til að koma sér hraðar í gegn. „Ég meina, við keyrðum bara, lögðum, tók­um úr bíln­um og hún fór.“

Atli bað um að fá að ræða við yf­ir­mann, sem var á fundi, svo hon­um var gefið sam­band við vakt­stjóra. Vakt­stjór­inn sagði að þetta væri bara svona, verið væri að reyna að beina fólki í önn­ur stæði. Stæði aðeins lengra í burtu þar sem megi leggja í kortér.

„Ég segi þá að það þurfi að út­skýra það fyr­ir fólki og það þurfi að vera hægt að fara í gegn á þess­um fimm mín­út­um. Þá sagði hann að þetta væri bara svona og svo ef fólk kvarti fari þeir í mynda­véla­kerfið og ef fólk hafi rétt fyr­ir sér verði reikn­ing­arn­ir felld­ir niður.

Ég spurði hvort ekki væri fylgst með í mik­illi um­ferð og tím­inn lengd­ur. Ég er ekki enn bú­inn að fá svar og ekki hef­ur þetta enn verið fellt niður. Ég sendi ít­rek­un áðan en hef ekki enn fengið svar,“ seg­ir Atli og bend­ir á að ef fólk leggi bíl­um sín­um í renn­unni borgi það 50 þúsund krón­ur fyr­ir sól­ar­hring­inn.

Spurður hvað hon­um finn­ist um aðferðafræði Isa­via ef mál­inu muni ljúka með niður­fell­ingu reikn­ings­ins, seg­ir Atli að samt sem áður finn­ist hon­um hún al­veg glötuð.

„Ef þetta væru tíu mín­út­ur þannig að væri hægt að taka slak­ann eða þeir myndu bara taka mynd af núm­er­inu þegar ég keyri inn í þar sem stoppistöðin er en ekki þegar ég kem í beygj­una væri það annað mál. Þeir þurfa nátt­úru­lega bara að stilla þetta af.“

Brennd­ur af sam­skipt­un­um

Fyr­ir rúmu ári síðan lenti hann í svipuðu at­viki í tengsl­um við al­mennu stæðin, þar sem farþegar skilja bíla sína eft­ir á meðan þeir eru á ferðalagi.

„Ég fékk rang­ar upp­lýs­ing­ar um lend­ing­ar­tíma sem varð til þess að ég fór klukku­tíma og kortér fram yfir tím­ann sem ég ætlaði að af­leggja bíln­um.

Ég var úti í fjóra daga en af því að ég sagði að ég myndi koma klukk­an 7 en fara klukk­an 23, sem sagt vera í þrjá og hálf­an dag, var ég lát­inn borga fyr­ir fimm daga fyr­ir að fara rúm­an klukku­tíma fram yfir þenn­an þrjá og hálf­an dag.

Þarna borg­ar þú ein­hvern átta þúsund kall fyr­ir fjóra daga og þarna er eng­in þjón­usta og ekk­ert sem bein­ir þér að laus­um stæðum til dæm­is,“ seg­ir Atli í forundr­an.

Hann reyndi að malda í mó­inn en allt kom fyr­ir ekki, sekt­inni var ekki haggað.  

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert