Nýtt fyrirkomulag bílastæðamála kynnt mjög vel

Isavia leggur áherslu á að ef fólk hefur einhverjar athugasemdir …
Isavia leggur áherslu á að ef fólk hefur einhverjar athugasemdir við þá þjónustu sem það greiðir fyrir á Keflavíkurflugvelli vill Isavia heyra af því. mbl.is/Hallur Már

Nýtt fyr­ir­komu­lag bíla­stæðamála við Kefla­vík­ur­flug­völl, sem tók gildi í mars, var kynnt mjög vel. Isa­via fór í aug­lýs­inga­her­ferð og all­ir fjöl­miðlar fengu upp­lýs­ing­ar um breyt­ing­arn­ar að sögn Guðjóns Helga­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa Isa­via.

mbl.is fjallaði í kvöld um bar­áttu manns við Isa­via, sem hafði verið 90 sek­únd­um of lengi í „renn­unni“ við brott­far­ar­inn­gang Kefla­vík­ur­flug­vall­ar á há­anna­tíma og fengið 1.990 króna sekt fyr­ir.

Guðjón seg­ir í sam­tali við mbl.is að þegar málið hafi verið kynnt hafi verið farið yfir rök­semd­ina fyr­ir breyt­ing­un­um og mót­vægisaðgerðir kynnt­ar.

Þær hafi meðal ann­ars fal­ist í því að að auka gjald­frjálsa tím­ann komu­meg­in í P2-bíla­stæðunum úr 15 mín­út­um í 30, til þess að þeir sem þurfi mögu­lega lengri tíma en fimm mín­út­ur geti þá nýtt þau stæði til að taka á móti eða skutlað farþegum.

Bíl­stjór­ar hafi lagt í renn­unni

Þá bend­ir hann á að fyrstu 15 mín­út­urn­ar í P1-bíla­stæðunum séu gjald­frjáls­ar og því til­valið fyr­ir þá sem þurfa meira en fimm mín­út­ur til að at­hafna sig að nota þau.

Í til­kynn­ingu frá Isa­via í fe­brú­ar seg­ir að „renn­an“ sé ætluð þeim sem þurfi að aka upp að flug­stöðinni og stöðva í stutta stund til þess að hleypa út farþegum, losa far­ang­ur eða ann­an farm. Nokkuð hafi verið um að bíl­stjór­ar hafi lagt bíl­um í „renn­unni“ í lengri tíma, sem stífli flæði um­ferðar og geti heft aðgengi farþega og viðbragðsaðila.

Seg­ir Guðjón yfir 80% þeirra sem noti „renn­una“ þurfi inn­an við fimm mín­út­ur til að at­hafna sig á svæðinu, sam­kvæmt niður­stöðum at­hug­un­ar á notk­un „renn­unn­ar“ yfir rúm­lega mánaðar tíma­bil. 8% bíla þurftu þó á bil­inu 16-20 mín­út­ur.

Til að sporna gegn því og stuðla að bættu flæði um „renn­una“ var tekið upp gjald á þau öku­tæki sem eru leng­ur en fimm mín­út­ur að at­hafna sig á svæðinu.

Guðjón seg­ir að miðgild­is­notk­un­in sam­kvæmt at­hug­un­inni hafi ekki náð þrem­ur mín­út­um, sem sýni að fimm mín­út­ur þyki eðli­leg tíma­mörk.

Hann seg­ir breyt­ing­arn­ar hafa verið mjög vel und­ir­bún­ar til að finna rétta punkt­inn og aðal­til­gang­inn að fá fólk til að hætta að leggja bíl­un­um sín­um á þessu til­tekna svæði sem marg­ir fara um.

Svokölluð brottfararrenna er reynin lengst til hægri. Fimm mínútur sem …
Svo­kölluð brott­far­ar­renna er reyn­in lengst til hægri. Fimm mín­út­ur sem fólk hef­ur til að at­hafna sig á svæðinu byrja að telja þegar keyrt er fram hjá hliðinu Ljós­mynd/​Aðsend

Isa­via biður fólk að hafa sam­band

„Við leggj­um áherslu á að ef fólk hef­ur ein­hverj­ar at­huga­semd­ir við þá þjón­ustu sem það greiðir fyr­ir á Kefla­vík­ur­flug­velli vill Isa­via heyra af því.

Hægt er að hafa sam­band við bíla­stæðaþjón­ust­una á Kefla­vík­ur­flug­velli en á vef Isa­via eru ít­ar­leg­ar upp­lýs­ing­ar um hana, meðal ann­ars um gjald­töku í „renn­unni“.

Við biðjum fólk að hafa sam­band ef það hef­ur eitt­hvað við gjald­töku í ein­hverj­um til­vik­um að at­huga. Öll mál eru skoðuð og við tök­um vel á móti öll­um sem vilja ræða við okk­ur og gera at­huga­semd­ir,“ seg­ir Guðjón.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert