Reisa nýtt öryggisfangelsi að Stóra Hrauni

Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu öryggisfangelsi.
Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu öryggisfangelsi. Mynd/Stjórnarráðið

Í síðustu viku samþykkti rík­is­stjórn til­lögu dóms­málaráðherra um að ráðast í bygg­ingu ör­ygg­is­fang­els­is að Stóra Hrauni. Um er að ræða fyrsta fang­elsið sem er sér­stak­lega hannað og byggt sem ör­ygg­is­fang­elsi á Íslandi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðsins en þar seg­ir sömu­leiðis að með bygg­ingu fang­els­is­ins verði hægt að tryggja nauðsyn­leg ör­ygg­is­skil­yrði og bætta aðstöðu fyr­ir fanga og starfs­fólk.

Gert er ráð fyr­ir að í fyrsta áfanga verði byggð rými fyr­ir 92 fanga og er áætlaður kostnaður við hann 17,8 millj­ón­ir króna.

Kem­ur í stað end­ur­bót­anna

Fang­els­inu að Stóra Hrauni verður skipt í ör­ygg­is­stig sem hafa verið skil­greind í sam­ræmi við nor­ræna staðla og var sér­stak­lega litið til Dan­merk­ur í þeim efn­um. Með þeirri skipt­ingu verður unnt að bæta heildarör­yggi inn­an fang­elsis­kerf­is­ins sem og aðgreina fanga eft­ir al­var­leika brota og draga úr lík­um á tengsl­um milli skipu­lagðra brota­hópa.

Nýja fang­elsið kem­ur í stað fyr­ir­hugaðra end­ur­bóta á Litla Hrauni þar sem ástand hús­næðis­ins reynd­ist mun verra en áður hafði verið talið. Stóra Hraun, sem er í næsta ná­grenni við Litla Hraun, verður byggt upp í áföng­um.

84 klef­ar í fyrsta hlut­an­um

Áætlað er að kostnaður við þenn­an fyrsta og stærsta áfanga verði 17,8 millj­ón­ir króna og fell­ur sá kostnaður und­ir fjár­mála­áætl­un fyr­ir árin 2026-2030.

Sá hluti fram­kvæmd­anna verður boðinn út á næst­unni og munu fram­kvæmd­ir við hann vænt­an­lega hefjast fljót­lega. Stefnt er að því að fram­kvæmd­ir við næsta áfanga hefj­ist svo í beinu fram­haldi af þeim fyrri.

Í fyrsta áfanga verks­ins er gert ráð fyr­ir 84 klef­um á Stóra Hrauni og þangað til fang­elsið verður full­byggt verði nokkr­ir klef­ar á Litla Hrauni notaðir sam­hliða. Er því gert ráð fyr­ir að pláss verði fyr­ir um 90 til 98 fanga á hverj­um tíma.

Þegar fang­elsið að Stóra Hrauni verður full­byggt er gert ráð fyr­ir að það geti hýst allt að 128 fanga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert