WEGo-þjóðirnar hlutu Velsældarverðlaunin

Halla Tómasdóttir veitir Gary Gillispie Velsældarverðlaunin.
Halla Tómasdóttir veitir Gary Gillispie Velsældarverðlaunin. Ljósmynd/Pétur Fjeldsted

Vel­sæld­ar­verðlaun­in voru veitt í fyrsta sinn á Vel­sæld­arþing­inu í Hörpu. Halla Tóm­as­dótt­ir, for­seti Íslands, er vernd­ari Vel­sæld­arþings­ins og af­henti hún full­trú­um WEGo-þjóðanna verðlaun­in. Gary Gil­lespie tók við verðlaun­un­um fyr­ir hönd rík­is­stjórna vel­sæld­ar­hag­kerfa, en hann er yf­ir­hag­fræðing­ur skosku heima­stjórn­ar­inn­ar. 

„Verðlaun­in eru veitt aðilum sem hafa stuðlað að ár­ang­urs­ríku fram­lagi til vel­sæld­ar í sam­fé­lög­um sín­um og í heim­in­um. Vel­sæld­ar­verðlaun­in eru veitt í anda þeirr­ar sýn­ar að hvetja til lausnamiðaðrar og mann­gæsku­legrar nálg­un­ar sem stuðlar að sjálf­bærni og umbreyt­ingu í átt að vel­sæld­ar­hag­kerfi,” seg­ir í frétta­til­kynn­ingu Vel­sæld­arþings­ins.

WEGo stend­ur fyr­ir Well­being Economy Go­vern­ments og eru WEGo-þjóðirn­ar sex tals­ins; Ísland, Finn­land, Skot­land, Kan­ada, Nýja Sjá­land og Wales og vinna þær sam­an að því að þróa hag­kerfi sem setja vel­sæld í for­gang.

Þessi ríki eiga það sam­eig­in­legt að deila svipaðri stefnu­mót­un, reynslu og mæli­kvörðum sem miða að því að tryggja að efna­hags­stefna stuðli að vel­ferð fólks og nátt­úru en ekki ein­göngu hag­vexti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert