Bakgarðshlaupið: Hver hleypur út í nóttina?

Það er lykilatriði að vera vel nærður ef þú ætlar …
Það er lykilatriði að vera vel nærður ef þú ætlar að hlaupa í heilan sólarhring, hvað þá tvo. mbl.is/Birta

Bak­g­arðshlaupið er í full­um gangi í Öskju­hlíðinni. Klukk­an níu í morg­un lögðu 203 hlaup­ar­ar af stað en nú eru færri en hundrað manns eft­ir. Ein­hverj­ir þeirra munu halda áfram inn í nótt­ina.

Bakgarðshlaupið hófst í Öskjuhlíð klukkan 9 í morgun og hafa …
Bak­g­arðshlaupið hófst í Öskju­hlíð klukk­an 9 í morg­un og hafa þátt­tak­end­ur nú hlaupið um 75 kíló­metra. mbl.is/​Birta

Kepp­end­ur hlaupa 6,7 kíló­metra hring eins oft og þeir geta og fá klukku­tíma að til að klára hring­inn hverju sinni. Hver hring­ur byrj­ar á heila tím­an­um og þurfa kepp­end­ur að vera komn­ir í rás­hólfið og hlaupa af stað þegar bjall­an hring­ir á næsta heila tíma, ann­ars eru þeir dæmd­ir úr keppni.

Frá Bakgarðshlaupinu.
Frá Bak­g­arðshlaup­inu. mbl.is/​Birta

Keppn­in er nú á 12. hringn­um og skipu­leggj­end­ur hlaups­ins greina frá því á Face­book að næsta stóra skref sé á miðnætti þegar eft­ir­stand­andi kepp­end­ur hafa náð 100km vega­lengd.

Hlauparar fá klukkustund í að hlaupa 6,7 kílómetra hring og …
Hlaup­ar­ar fá klukku­stund í að hlaupa 6,7 kíló­metra hring og fá að nýta af­gangs­tíma í hvíld. Svo leggja þeir af stað í næsta hring. mbl.is/​Birta

Íslands­metið stend­ur nú í 62 hringj­um (415 km) en heims­met er 116 hring­ir (777 km). Sig­ur­veg­ar­inn fær bíl í verðlaun, Kia Ev3, ef hon­um tekst að hlaupa drægni hans, sem er 605 kíló­metr­ar (91 hring­ur). Sá myndi samt þurfa að hlaupa í tæp­lega fjóra sól­ar­hringa.

Veðrið getur varla leikið betur við bakgarðshlaupara.
Veðrið get­ur varla leikið bet­ur við bak­g­arðshlaup­ara. mbl.is/​Birta
Bakgarðshlauparar klára hring.
Bak­g­arðshlaup­ar­ar klára hring. mbl.is/​Birta
Bakgarðshlaupið er í fullum gangi.
Bak­g­arðshlaupið er í full­um gangi. mbl.is/​Birta
Frá Bakgarðshlaupinu í dag.
Frá Bak­g­arðshlaup­inu í dag. mbl.is/​Birta
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert