Heimilislæknar gera ekki tilvísanir fyrir börn til sérgreinalækna

Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður félags íslenskra heimilislækna, fór yfir deilu …
Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður félags íslenskra heimilislækna, fór yfir deilu heimilislækna og heilbrigðisyfirvalda með mbl.is, í kjölfar neitunar heimilislæknis á að skrifa ávísun fyrir ungan dreng. Samsett mynd/mbl.is/RAX

Ung­ur dreng­ur sem slasaðist á hjóli í fyrra og fékk í kjöl­farið ör í and­liti þarf nú að kom­ast í laseraðgerð til að laga það. Heim­il­is­lækn­ir neit­ar aft­ur á móti að skrifa ávís­un fyr­ir dreng­inn, í þeim til­gangi að þrýsta á heil­brigðisráðherra í deilu heim­il­is­lækna og heil­brigðis­yf­ir­valda.

Þetta herma heim­ild­ir mbl.is.

Í svari Heilsu­veru við beiðni móður drengs­ins kem­ur fram að fé­lag ís­lenskra heim­il­is­lækna hafi beint til­mæl­um til fé­lags­manna að gera ekki til­vís­an­ir fyr­ir börn til barna- og sér­greina­lækna ef heim­il­is­lækn­ir hef­ur ekki komið að vanda­mál­inu. Mark­miðið sé að þrýsta á heil­brigðisráðherra að fella úr gildi kröfu um til­vís­un frá heim­il­is­lækni fyr­ir börn til barna- og sér­greina­lækna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert