Vill setja velferð í forgang hjá UNESCO

Gabriela Ramos, frambjóðandi til framkvæmdastjóra UNESCO.
Gabriela Ramos, frambjóðandi til framkvæmdastjóra UNESCO. mbl.is/Karítas

Gabriela Ramos, fram­bjóðandi til stöðu aðal­fram­kvæmd­ar­stjóra UNESCO, tel­ur mik­il­vægt að fjár­festa í mennt­un og vís­ind­um vegna hraðra breyt­inga í heim­in­um. UNESCO, menn­ing­ar­mála­stofn­un Sam­einuðu þjóðanna, vinn­ur að því að efla frið, sjálf­bærni og mann­rétt­indi með alþjóðlegu sam­starfi á sviði mennt­un­ar, vís­inda og menn­ing­ar.

„Mennt­un skipt­ir gríðarlega miklu máli til að öðlast skiln­ing á nýrri heims­mynd og sem sam­ein­ing­arafl. Við þurf­um að tryggja að menn­ing sé ekki auka­atriði, við þurf­um að fjár­festa í menn­ingu og búa þannig til skap­andi hag­kerfi. Menn­ing hef­ur gríðarleg áhrif á sam­fé­lög og vel­ferð fólks”.

Fjár­festa þurfi í vís­ind­um

„Við lif­um í heimi sem er að breyt­ast af­skap­lega hratt hvað varðar tækni­leg­ar bylt­ing­ar og gervi­greind. Við þurf­um því að fjár­festa meira í vís­ind­um og er það eitt­hvað sem við höf­um verið að gera hjá UNESCO. Við þurf­um að nota tækn­ina til að hjálpa okk­ur að byggja upp sjálf­bæra framtíð,” seg­ir Gabriela.

„UNESCO þarf að vera virk­ur þátt­tak­andi og við þurf­um að koma með lausn­ir. UNESCO þarf að vinna með aðild­ar­ríkj­um til að hafa raun­veru­leg áhrif. Við þurf­um að gera ákall til landa um að halda áfram að vinna að því að stuðla að friði,” seg­ir Gabriela.

Gabriela Ramos er í fram­boði Mexí­kó til aðal­fram­kvæmda­stjóra UNESCO. Eins og er starfar hún sem aðstoðarfram­kvæmda­stjóri fé­lags­vís­inda- og mann­fræðideild­ar inn­an UNESCO. Gabriela seg­ist ætla að setja vel­ferð ofar á dag­skrána hljóti hún stöðuna. Þrír eru í fram­boði til fram­kvæmda­stjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert