Hefndarleiðangur Þórðar Snæs?

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Eng­ar skýr­ing­ar fást á því op­in­ber­lega af hverju stærst­ur hluti þing­flokks Sam­fylk­ing­ar neit­ar með öllu að mæta á vett­vang Spurs­mála. Staðfest er að fram­kvæmda­stjóri þing­flokks­ins leggst gegn því.

    Þetta kem­ur fram í nýj­asta þætti Spurs­mála.

    Heim­ild­ir herma að fram­kvæmda­stjór­inn, Þórður Snær Júlí­us­son, hafi meira að segja hvatt þing­menn annarra flokka á þingi til að gera slíkt hið sama?

    En er það lýðræðis­legt eða mál­efna­legt?

    Í fyrr­nefnd­um þætti er þeirri spurn­ingu varpað fram hvort viðtalið sem Þórður Snær mætti í á vett­vangi Spurs­mála í nóv­em­ber síðastliðnum sé nú vald­ur að því að hann reyni að koma í veg fyr­ir op­in­skáa og eðli­lega umræðu um mik­il­væg­ustu mál­efni líðandi stund­ar.

    „Þess­ar elsk­ur“

    Í viðtal­inu fyrr­nefnda var upp­lýst í fyrsta sinn að Þórður Snær væri maður­inn á bak við Þýska stálið, blogg sem hann hélt úti þegar hann var á þrítugs­aldri og lét gamm­inn geisa, ekki síst með afar niðrandi skrif­um um kon­ur.

    Mál hans komst í há­mæli fyr­ir nokkr­um árum þegar Rann­veig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan kærði hann til siðanefnd­ar Blaðamanna­fé­lags Íslands fyr­ir skrif í sinn garð.

    Hver var Þýska stálið?

    Þá lét Þórður að því liggja að hann væri alls ekki maður­inn sem haldið hefði um penn­ann und­ir dul­nefn­inu.

    En í nóv­em­ber fékkst það end­an­lega staðfest og þegar frek­ari skrif Þýska stáls­ins urðu op­in­ber ákvað Þórður Snær að þiggja ekki sæti á Alþingi. Kristrún Frosta­dótt­ir taldi ákvörðun­ina rétta en gerði hann að fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í staðinn.

    Erfitt er að slá því föstu hvað veld­ur. En það er þó að minnsta kosti staðfest hverj­ar starfsaðferðirn­ar eru.

    Nýj­asta þátt Spurs­mála má sjá í heild sinni hér að neðan:

    mbl.is

    Bloggað um frétt­ina

    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert