Hlýrra loft sækir að landinu

Hitaspá Veðurstofunnar klukkan 17 á þriðjudag.
Hitaspá Veðurstofunnar klukkan 17 á þriðjudag. Kort/Veðurstofa Íslands

Í morg­uns­árið var lægðardrag aust­ur af land­inu og eimdi eft­ir af élja­gangi næt­ur­inn­ar á Norðaust­ur- og Aust­ur­landi, að því er seg­ir í hug­leiðing­um veður­fræðings Veður­stof­unn­ar.

Kem­ur þar fram að í dag fjar­læg­ist dragið og átt­in verði suðvest­læg. Víða verði gola eða kaldi og smá­skúr­ir á víð og dreif.

Það létt­ir til um landið norðaust­an­vert. Hiti verður á bil­inu 5 og 11 stig yfir dag­inn. Seint í dag mun smám sam­an bæta í vind á norðvest­ur­hluta lands­ins.

Tals­verð hlý­indi fram und­an

„Á morg­un sæk­ir hlýrra loft að land­inu. Áttin verður þó áfram suðvest­læg, víða 8-15 m/​s, hvass­ast á Norður­landi,“ seg­ir í hug­leiðing­un­um.

Þurrt og bjart veður verður um landið norðaust­an- og aust­an­vert, ann­ars skýjað og sums staðar dá­lít­il væta. Mun þá létta til yfir dag­inn norðvest­an­lands. Hlýj­ast verður á Aust­ur­landi, 7-16 stig.

„Í fram­hald­inu er svo út­lit fyr­ir áfram­hald­andi suðlæg­ar átt­ir með tals­verðum hlý­ind­um, einkum um landið norðaust­an­vert.“

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert