Rándýr refur varð sílamávi að bráð

Sílamávurinn og bragðarefurinn.
Sílamávurinn og bragðarefurinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þegar vora tek­ur leyn­ast freist­ing­ar víða og á það ekki síður við um máva en menn. Síla­máv­ur nokk­ur stóðst ekki mátið þegar hann fann hálfét­inn bragðaref frá Ísbúð Vest­ur­bæj­ar og svolgraði hann í sig af ákefð.

Erfitt er að áfell­ast mávinn, enda hafa unn­end­ur bragðarefa fundið fyr­ir verðlagsþróun í land­inu síðustu miss­eri. Kost­ar miðstærð af bragðaref nú 2.190 krón­ur.

Reynd­ar er ekki hægt að úti­loka þann mögu­leika að mark­mið síla­mávs­ins hafi alls ekki verið að gæða sér á refn­um, en hann minnti ískyggi­lega á ná­skyld­an frænda sinn, hettu­máfinn, þegar hann reisti haus sinn úr doll­unni.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert