Á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið var á Selfossi á föstudag og laugardag var skorað á stjórnvöld að tryggja Slysavarnafélaginu Landsbjörg, sem er aðili að samningi um hjálparlið Almannavarna, og félagseiningum þess, niðurfellingu á virðisaukaskatti vegna starfsemi sinnar.
Í greinargerð segir að starfsemi björgunarsveita sé óumdeilanlega þýðingarmikil í íslensku samfélagi en á landinu eru starfræktar yfir 90 slíkar sveitir sem mannaðar eru sjálfboðaliðum er sinna margvíslegu björgunar- og slysavarnarstarfi.
„Í ljósi mikilvægis björgunarsveita og þeirra lykilhlutverki í almannavarna- og neyðarviðbragði er nauðsynlegt að rekstrar- og skattaumhverfi þeirra, sem og viðurkenndra heildarsamtaka þeirra sé skýrt og ekki óhóflega íþyngjandi,“ segir í greinargerðinni.
Þar segir að breyting þessi sé til þess ætluð að hlúa að rekstri björgunarsveita og viðurkenndra heildarsamtaka þeirra með það að markmiði að umræddir aðilar geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki um ókomna tíð líkt og systursamtök erlendis.
„Slíkar undanþágur hafa þegar verið veittar á öðrum sviðum samfélagsins þegar sérstakar aðstæður réttlæta það, og því er eðlilegt að horft verði til sjálfboðaliðasamtaka í hópi viðbragðsaðila og þeim veitt undanþága frá virðisaukaskatti vegna starfsemi sinnar,“ segir enn fremur í greinargerðinni.
Í annarri ályktun þingsins var skorað að tryggja samhæfingarstöð Almannavarna og tengdum viðbragðsaðilum sameiginlegt húsnæði við hæfi sem allra fyrst.
„Skipulag og rekstur samhæfingarstöðvar og tengdra viðbragðsaðila í sameiginlegu húsnæði eykur verulega skilvirkni og auðveldar samhæfingu viðbragða. Þegar viðbragðsaðilar deila aðstöðu skapast betri skilyrði fyrir samvinnu, miðlun upplýsinga og samræmdrar ákvarðanatöku í neyðartilvikum,“ segir í greinagerðinni.
Þar segir að undanfarið hafi viðbragðsaðilar þurft að búa við dreifða starfsemi í ólíkum húsakynnum, m.a. vegna viðgerða og ástands núverandi húsnæðis. Þetta hafi skapað óæskilegar hindranir í daglegri starfsemi og dregið úr skilvirkni.
Yfir 500 félagar sóttu þingið og viðburði tengda því á Selfossi og nágrenni. Á þinginu var kjörin ný forysta og var Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir kjörin formaður til næstu tveggja ára.