Sló starfsmann verslunar

Þrír gistu í fangaklefum lögreglu í nótt.
Þrír gistu í fangaklefum lögreglu í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu var kölluð til vegna ein­stak­lings sem sló starfs­mann versl­un­ar. 

Meint­ur ger­andi var far­inn er lög­reglu bar að garði, að því er seg­ir í dag­bók lög­reglu.

Kem­ur þar fram að þrír hafi gist í fanga­klef­um eft­ir nótt­ina. 

Þjóf­ur­inn ofurölvi

Höfð voru af­skipti af er­lend­um ein­stak­lingi sem er grunaður um ólög­lega dvöl á land­inu. Var hann vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sókn­ar máls­ins.

Lög­reglu var einnig til­kynnt um þjófnað í versl­un. Þjóf­ur­inn var ofurölvi og óviðræðuhæf­ur og var hann vistaður í fanga­klefa þangað til renn­ur af hon­um.

Þá var til­kynnt um lík­ams­árás í miðbæn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert