Hlýindi um allt land

Hiti verður víða á bilinu 11 til 20 stig en …
Hiti verður víða á bilinu 11 til 20 stig en það þykknar upp vestanlands annað kvöld. Kort/Veðurstofa Íslands

Bú­ast má við suðvest­an 8-18 metr­um á sek­úndu í dag þar sem hvass­ast verði í vind­strengj­um á norðan­verðu land­inu.

Bjartviðri er vænt­an­legt norðaust­an- og aust­an­lands en ann­ars verður skýjað að mestu og sums staðar dá­lít­il væta.

Það mun draga úr vindi síðdeg­is. Hiti verður á bil­inu 7 til 16 stig, hlýj­ast á Aust­ur­landi.

Allt að 20 stiga hiti á morg­un

Á morg­un má bú­ast við suðlægri eða breyti­legri átt 3-10 metr­um á sek­úndu og yf­ir­leitt létt­skýjuðu veðri, en sunn­an 8-15 norðvest­an til og lít­ils­hátt­ar vætu fram­an af degi.

Hiti verður víða á bil­inu 11 til 20 stig en það þykkn­ar upp vest­an­lands annað kvöld.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert