Ekkert bendir til slyss og leit hætt

Björgunarskipið Sigurvin tók þátt í leitinni.
Björgunarskipið Sigurvin tók þátt í leitinni. Ljósmynd/Landsbjörg

Aðgerðar­stjórn al­manna­varna á Ak­ur­eyri seg­ir að ekk­ert bendi til þess að skip hafi verið í vanda í Eyjaf­irði og leit hef­ur því verið hætt. 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu lög­regl­unn­ar á Norður­landi eystra á Face­book. 

Eins og mbl.is greindi fyrst frá þá barst til­kynn­ing klukk­an 17:42 frá íbúa á Hauga­nesi sem taldi sig sjá bát í vand­ræðum á miðjum Eyjaf­irði.

Til­kynn­and­inn lýsti bátn­um sem hvít­um og greindi frá því að hann hefði horfið sjón­um og ekk­ert til hans sést eft­ir það.

Ekk­ert sem bend­ir til slyss

Neyðarlín­an til­kynnti strax Land­helg­is­gæsl­unni um málið og var þyrla send á vett­vang. Einnig voru viðbragðsaðilar við Eyja­fjörð ræst­ir út.

Klukk­an 18:13 óskaði Land­helg­is­gæsl­an eft­ir því að aðgerðar­stjórn al­manna­varna á Ak­ur­eyri tæki við stjórn leit­araðgerða. Björg­un­ar­sveit­ir á svæðinu ásamt lög­reglu brugðust skjótt við og sendu fjóra dróna, fjóra báta og þrjár sæþotur til leit­ar. Einnig var fylgst með af landi með sjón­auk­um.

Sam­hliða þessu var farið í smá­báta­hafn­ir við Eyja­fjörð til að kanna hvort ein­hverja báta væri saknað. Ekk­ert fannst við þessa leit eða eft­ir­grennsl­an sem benti til þess að bát­ur hefði farið niður.

„Eng­ar vís­bend­ing­ar hafa fund­ist um að þarna hafi verið sjóf­ar í vanda og hef­ur leit­araðgerðum verið hætt,“ seg­ir lög­regl­an. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert