Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari hafnar öllum þeim ásökunum sem koma fram í viðtali við Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumann og eiganda fyrirtækisins PPP, í Brotkasti í dag.
Í viðtalinu segir Jón Óttar að Ólafur hafi verið búinn að ákveða að kæra þá Guðmund Hauk Gunnarsson þegar þeir undirrituðu verktakasamning um sérfræðistörf á sviði rannsókna hjá embætti sérstaks saksóknara árið 2012.
Ólafur hafi leitt þá í gildru, en tvímenningarnir voru kærðir fyrir þagnarskyldubrot vegna gruns um að þeir hefðu tekið gögn frá embættinu í óleyfi og afhent skiptastjóra þrotabús Milestone. Ríkissaksóknari felldi málið hins vegar niður árið 2013 þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar.
Þá hélt Jón Óttar því einnig fram að Ólafur hefði sjálfur lekið gögnum í fjölmiðla nýlega sem sýndu fram á meintan gagnastuld af hálfu eigenda PPP úr kerfum embættis sérstaks saksóknara. Það hafi hann gert eftir að Jón Óttar kærði hann til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu í lok síðasta árs.
„Við höfnum þessum ásökunum og vísum til þess að málið sé til rannsóknar hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi sem ég á von á að fari vel ofan í saumana á þessu. Á meðan erum við ekki að kommenta á þetta frekar,“ segir Ólafur í samtali við mbl.is.
En hvað með þetta að þú hafir leitt hann í gildru árið 2012?
„Við höfnum öllum ásökunum sem koma fram í viðtalinu,“ ítrekar Ólafur.
Jón Óttar segir í viðtalinu að Ólafur hafi spurt hvort í lagi væri að dagsetja umræddan verktakasamning aftur í tímann, og samþykktu þeir það. Samningurinn er því dagsettur 2. janúar 2012 þó að hann hafi ekki verið gerður fyrr en í febrúar sama ár. Jón Óttar vill meina að þetta sýni fram á ásetning um að leiða þá í gildru.
Hver er skýringin á því að hann sé dagsettur aftur í tímann?
„Við teljum okkur hafa fullgildar skýringar á þessu öllu saman. Ég er búinn að grafa það upp. Það eru til svör við því og þau koma í ljós þegar þar að kemur,“ segir Ólafur.
Í yfirheyrsluskýrslu yfir Ólafi vegna rannsóknar á meintum brotum á þagnarskyldu Jóns Óttars og Guðmundar árið 2012, sem mbl.is hefur undir höndum, segir hann starfsannir skýringuna á því að samningurinn hafi verið dagsettur aftur í tímann.