Gat ekki þverfótað fyrir útlenskum einkaspæjurum

Jón Óttar segir að hann myndi biðja þá afsökunar sem …
Jón Óttar segir að hann myndi biðja þá afsökunar sem hann njósnaði um, hitti hann þá úti á götu. Ljósmynd/Sigfús Már Pétursson

Jón Óttar Ólafs­son, fyrr­ver­andi lög­reglumaður og ann­ar eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins PPP, viður­kenn­ir að það hafi verið rangt að njósna um al­menna borg­ara árið 2012. Hann hafi gripið til þessa ráðs ásamt koll­ega sín­um þegar starfs­ferl­in­um var kippt und­an þeim. Það af­saki ekki það sem þeir gerðu en út­skýri það engu að síður.

Þetta kem­ur fram í viðtali Frosta Loga­son­ar við hann í Brot­kasti.

Jón Óttar tek­ur þó líka fram að lagaum­hverfið hafi verið allt annað á þess­um tíma, per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­in hafi verið önn­ur. Þetta hafi því verið minna mál en í dag.

Greint var frá því í frétta­skýr­ingaþætt­in­um Kveik fyr­ir tveim­ur vik­um að Björgólf­ur Thor Björgólfs­son hefði fengið PPP til að njósna fyr­ir sig um per­són­ur og leik­end­ur í mál­sókn gegn hon­um sem stærsta eig­anda hins fallna Lands­banka árið 2008.

Var hann sagður hafa reynt að kom­ast á snoðir um það hvort Ró­bert Wessman væri á bak við mál­sókn­ina. Beind­ust njósn­irn­ar einna helst gegn Vil­hjálmi Bjarna­syni, síðar þing­manni Sjálf­stæðis­flokks, Ólafi Krist­ins­syni lög­manni og Jó­hann­esi Bjarna Björns­syni hæsta­rétt­ar­lög­manni.

Reyndu að búa sér til ein­hverja stöðu

Þeir Jón Óttar og Guðmund­ur Hauk­ur Gunn­ars­son létu af störf­um hjá sér­stök­um sak­sókn­ara um ára­mót­in 2011 og 2012 til að koma á fót fyr­ir­tæk­inu PPP sem sinnti verk­efn­um fyr­ir skipta­stjóra þrota­búa og slita­stjórn­ir banka.

Vorið 2012 kærði sér­stak­ur sak­sókn­ari þá fyr­ir brot á þagn­ar­skyldu vegna gruns um að þeir hefðu af­hent skipta­stjóra þrota­bús Milest­one gögn frá embætt­inu í óleyfi. Málið var þó fellt niður árið síðar.

Jón Óttar seg­ir í viðtal­inu við Frosta að sum­arið 2012 hafi þeir fé­lag­ar verið í miklu áfalli eft­ir að hafa verið kærðir fyr­ir þagn­ar­skyldu­brot vegna gruns um að hafa af­hent skipta­stjóra þrota­bús Milest­one gögn frá sér­stök­um sak­sókn­ara í óleyfi.

Þeir hafi ekki séð fram á mikla framtíð.

„Við erum að reyna að búa okk­ur til ein­hverja stöðu og erum að vinna hluti sem við átt­um að sjálf­sögðu ekki að gera og gerðum aldrei aft­ur. Ég er ekki að af­saka það neitt en þetta er eitt­hvað sem við átt­um ekki að gera.“

Fyrr­ver­andi MI5 og MI6-njósn­ar­ar

Það að starfs­ferl­in­um hafi verið kippt und­an þeim út­skýri hvað þeir gerðu en það af­saki það hins veg­ar ekki.

„Ég er ekk­ert fórn­ar­lamb og hef aldrei gert eitt­hvað sem ein­hver hef­ur ýtt mér út í.“

Hann seg­ir and­rúms­loftið árið 2012 hafa verið mjög sér­stakt.

„Það voru hérna alls kon­ar út­lensk­ir einka­spæj­ar­ar, kroll karl­ar að vinna fyr­ir slita­stjórn Glitn­is. Maður gat ekki þver­fótað fyr­ir þess­um mönn­um í bæn­um. Þetta voru allt ein­hverj­ir fyrr­ver­andi MI5 eða MI6 njósn­ar­ar og ein­hverj­ir svo­leiðis karl­ar. Þeir voru að yf­ir­heyra starfs­menn Glitn­is fyr­ir hönd slita­stjórn­ar.“

Spurður í viðtal­inu hvað hann myndi segja við þá sem PPP njósnaði um á sín­um tíma, ef hann hitti þá úti á götu í dag, seg­ir Jón Óttar að hann myndi biðja þá af­sök­un­ar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert