Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velferðarnefndar, segir stjórnarandstöðuna nota fundarliðinn fundarstjórn forseta til þess að gráta í pontu fyrir framan alþjóð.
Orð Kolbrúnar komu í kjölfar þess að Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók til máls í þingsal í dag, undir liðnum fundarstjórn forseta, en þingmenn deildu þar um nefndarstörf þingsins.
Rósa segir velferðarnefnd Alþingis hafa gert lítið úr mögulegum áhrifum lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á sveitarfélög.
„Mikill fjöldi gesta hafði komið til nefndarinnar en nefndin gat ekki orðið við því að fá fulltrúa frá fjármálaráðuneytinu eða umsögn þaðan. Gert var lítið úr því að lögfestingin gæti haft áhrif á sveitarfélögin og þá sem veita þjónustuna,“ sagði Rósa í ræðustól Alþingis fyrr í dag.
Kolbrún sem er eins og áður segir formaður velferðarnefndar brást ókvæða við kvörtunum Rósu í kjölfarið.
„Þessi fundarliður er farin að taka á sig ótrúlegri mynd. Þegar stjórnarandstöðunni mislíkar eitthvað við okkur í meirihlutanum þá er komið hingað og grátið í pontu fyrir framan alþjóð,“ sagði Kolbrún í svari sínu í ræðustól Alþingis.
Kolbrún sagði að góður hópur gesta hafi komið fyrir nefndina áður en málið var afgreitt úr nefndinni. Hún vill meina að um „trix“ hafi verið að ræða frá stjórnarandstöðunni sem hafi viljað koma í veg fyrir að málið yrði afgreitt úr nefndinni.