Hefðarfólk á hjólum á ferðinni í Reykjavík

Mótorhjólafólk snyrtilega klætt á klassískum og gamaldags hjólum.
Mótorhjólafólk snyrtilega klætt á klassískum og gamaldags hjólum. Ljósmynd/Hefðarfólk á hjólum

Á laug­ar­dag­inn mega gest­ir og gang­andi bú­ast við prúðbún­um mótor­hjóla­mönn­um á ferð um göt­ur Reykja­vík­ur. Viðburður­inn The Dist­inguis­hed Gent­leman's Ride eða Hefðarfólk á hjól­um fer þá fram og er hluti af alþjóðleg­um viðburði þar sem mótor­hjóla­fólk kem­ur sam­an, snyrti­lega klætt á gam­aldags og klass­ísk­um mótor­hjól­um.

„Við byrjuðum með þenn­an viðburð árið 2018 á Íslandi en þetta byrjaði í Ástr­al­íu. Einn fé­lagi okk­ar tók eft­ir þessu og þótti hon­um til­valið að vekja áhuga á þessu hérna heima til að auka sýni­leika á mótor­hjóla­fólki. Við vild­um líka brjóta upp þess­ar staðalí­mynd­ir sem fólk hef­ur af mótor­hjóla­fólki, það eru ekki all­ir leður­klædd­ir,“ seg­ir Sig­mund­ur Trausta­son, einn af skipu­leggj­end­um Hefðarfólks á hjól­um í sam­tali við mbl.is

Mikil stemning myndast ár hvert.
Mik­il stemn­ing mynd­ast ár hvert. Ljós­mynd/​Hefðarfólk á hjól­um

„Aðalástæðan fyr­ir þessu er að þetta er góðgerðarviðburður til að vekja at­hygli á heilsu karl­manna, sem veit­ir nú ekki af. Það er verið að beina sjón­um að geðheilsu og krabba­meini í blöðru­hálskirtli. Fólk get­ur safnað áheit­um og það renn­ur allt til alþjóðlegu Mo­v­em­ber-góðgerðarsam­tak­anna sem vinna að því að auka at­hygli á heilsu karl­manna í heim­in­um. Einnig sjá þau um alls kyns for­varn­ir og rann­sókn­ir á krabba­meini og öðrum sjúk­dóm­um,“ seg­ir Sig­mund­ur. 

Viðburðurinn fer fram víðs vegar í heiminum.
Viðburður­inn fer fram víðs veg­ar í heim­in­um. Ljós­mynd/​The Distunguis­hed Gent­lem­ans's Ride

Viðburður­inn hefst á bryggj­unni við Granda Mat­höll klukk­an eitt og þar mun Kristján Björn Þórðar­son frá versl­un­inni Kor­máki & Skildi ávarpa gesti og gang­andi. Klukk­an tvö verður lagt af stað í fylgd lög­reglu, farið stutt­an hring um Seltjarn­ar­nes og miðbæ Reykja­vík­ur. Keyrsl­unni mun ljúka við Canopy Reykja­vík hót­elið í Hjarta­g­arðinum við Laug­ar­veg um hálf þrjú. Þar verður karla­kór Kaffi­bars­ins og Bar­tón­ar og munu þeir taka nokk­ur lög.

Aðspurður seg­ist Sig­mund­ur bú­ast við 50-100 hjól­um vegna góðrar veður­spár. 

„Fólk er að sýna þessu mik­inn áhuga og þetta á fyrst og fremst að vera skemmti­leg­ur viðburður.“

Hægt er að skrá sig eða styrkja mál­efnið inni á vefsíðu viðburðar­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert