Hitatölur um 20 stig út vikuna

Sumarblíða verður áfram á landinu fram yfir helgi.
Sumarblíða verður áfram á landinu fram yfir helgi. mbl.is/Eyþór

Blíðviðri rík­ir nú á land­inu öllu en veður­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands seg­ir að veðrið verði með álíka góðu móti fram yfir helgi.

„Já já, það er út­lit fyr­ir að þetta verði alla­vega eitt­hvað fram yfir helgi,“ seg­ir Ei­rík­ur Örn Jó­hann­es­son, veður­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, spurður hvort að góða veðrið sem lands­menn vöknuðu upp við í morg­un komi til með að ríkja áfram.

Eitt­hvað skýjaþykkni og kannski smá súld

Al­mennt má bú­ast við sól­skini á land­inu öllu, þó með nokkr­um und­an­tekn­ing­um á sunn­an- og suðvest­an­verðu land­inu.

„Þar kem­ur af og til eitt­hvað skýjaþykkni yfir og kannski ein­hver smá súld en rest­in af land­inu er í fín­um mál­um,“ út­skýr­ir Ei­rík­ur Örn.

Hann bæt­ir þó við að víða verði þoku­loft við strönd lands­ins, sér­stak­lega á nótt­unni og á morgn­ana.

Veðurspá er með besta móti út vikuna en svona eru …
Veður­spá er með besta móti út vik­una en svona eru veður­horf­ur á sunnu­dag. Skjá­skot/​Veður­stofa Íslands

Hæð yfir Fær­eyj­um að þakka 

Spurður hvaða hita­töl­um megi bú­ast við í vik­unni seg­ir Ei­rík­ur:

„Það má bú­ast við að há­marks­hiti á svo gott sem á hverj­um degi verði í kring­um 20 gráður, plús, mín­us. En svo er auðvitað sval­ara þar sem þoku­loft er. Þar verður hit­inn frek­ar í kring­um 7-9 gráður.“

Spurður hvað skýri þetta sól­ríka og hlýja veður á land­inu öllu út­skýr­ir Ei­rík­ur að það stafi af hæð yfir Fær­eyj­um.

„Það sem skýr­ir af hverju þetta ger­ist núna er að það er hæð suður af land­inu sem er að koma sér fyr­ir yfir Fær­eyj­um. Þegar við fáum svona öfl­ug­ar hæðir get­ur veðrið oft verið svona gott í flest­um eða öll­um lands­hlut­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert