Ljósastýring víða í ólagi í dag

Stjórnkassinn fyrir umferðarljósin á gatnamótum Miklubrautar við Kringluna varð rafmagnslaus.
Stjórnkassinn fyrir umferðarljósin á gatnamótum Miklubrautar við Kringluna varð rafmagnslaus. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Ljós­a­stýr­ing um­ferðarljósa hef­ur verið í ólagi á nokkr­um stöðum í Reykja­vík í dag.

Guðbjörg Lilja Er­lends­dótt­ir, sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borg­ar, seg­ir í sam­tali við mbl.is að um­ferðarljós­in á gatna­mót­um Miklu­braut­ar við Kringl­una hafi slegið út í um það bil hálf­tíma fyrr í dag.

Var það vegna þess að stjórn­kass­inn á um­ferðarljós­un­um varð raf­magns­laus.

Þá nefn­ir hún að um­ferðarljós við gatna­mót Höfðabakka og Stekkj­ar­bakka séu óvirk vegna bil­un­ar. Búið er að loka fyr­ir vinstri beygju frá Stekkj­ar­bakka í Höfðabakka til norðurs og frá Höfðabakka í Stekkj­ar­bakka

Árni Friðleifs­son, sem er í um­ferðardeild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir að fyrr í dag hafi einnig komið upp trufl­an­ir á um­ferðarljós­um á Bú­staðavegi, sem séu þó kom­in í lag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert