Margrét tímabundinn lögreglustjóri

Margrét Kristín Pálsdóttir tekur tímabundið við stöðu lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Margrét Kristín Pálsdóttir tekur tímabundið við stöðu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Mar­grét Krist­ín Páls­dótt­ir, aðstoðarlög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, hef­ur verið sett tíma­bundið í embætti lög­reglu­stjór­ans á Suður­nesj­um. 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráðinu en Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra til­kynnti Úlfari Lúðvíks­syni, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra lög­regl­unn­ar á Suður­nesj­um, í gær að hún hygðist aug­lýsa stöðu hans en skip­un­ar­tími Úlfars renn­ur út í nóv­em­ber. 

Úlfar óskaði lausn­ar frá störf­um og varð ráðherr­ann við þeirri ósk. Úlfar sagði í sam­tali við mbl.is fyrr í dag að það hefði komið hon­um í opna skjöldu að ráðherr­ann hygðist aug­lýsa stöðu hans. 

Sagðist hann ekki koma til með að starfa aft­ur hjá lög­regl­unni á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert