Myndir: Umfangsmikil leitaraðgerð í Eyjafirði

Hér má sjá björgunarskipið Sigurvin.
Hér má sjá björgunarskipið Sigurvin. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Mikið viðbragð var í Eyjaf­irðinum fyrr í kvöld eft­ir að íbúi taldi sig hafa séð bát á hvolfi fyr­ir utan Hauga­nes. Björg­un­ar­sveit­ar­menn og Land­helg­is­gæsl­an tóku þátt í leit­inni en að lok­um benti ekk­ert til þess að sjóf­ar hefði lent í vanda og leit því hætt upp úr klukk­an 20.

Frétta­rit­ari Morg­un­blaðsins og mbl.is var á vett­vangi og náði ljós­mynd­um af mikl­um leit­araðgerðum viðbragðsaðila.

Þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi yfir Eyjafirði.
Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar á sveimi yfir Eyjaf­irði. mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son

Til­kynn­ing­in barst klukk­an 17.42 og Neyðarlín­an til­kynnti strax Land­helg­is­gæsl­unni um málið og var þyrla send á vett­vang. Einnig voru viðbragðsaðilar við Eyja­fjörð ræst­ir út.

Björgunarsveitin Ægir tók þátt.
Björg­un­ar­sveit­in Ægir tók þátt. mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son

Björg­un­ar­sveit­ir á svæðinu ásamt lög­reglu brugðust skjótt við og sendu fjóra dróna, fjóra báta og þrjár sæþotur til leit­ar. Einnig var fylgst með af landi með sjón­auk­um.

mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son

Sam­hliða þessu var farið í smá­báta­hafn­ir við Eyja­fjörð til að kanna hvort ein­hverja báta væri saknað. Ekk­ert fannst við þessa leit eða eft­ir­grennsl­an sem benti til þess að bát­ur hefði farið niður.

„Eng­ar vís­bend­ing­ar hafa fund­ist um að þarna hafi verið sjóf­ar í vanda og hef­ur leit­araðgerðum verið hætt,“ skrifaði lög­regl­an á Norður­landi eystra á Face­book. 

Það voru margir sem tóku þátt í útkallinu.
Það voru marg­ir sem tóku þátt í út­kall­inu. mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert