Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að starfslok Úlfars Lúðvíkssonar sem lögreglustjóra séu tilkomin vegna þess að hann var „hreinskilinn um stöðuna í útlendingamálum.“
Sigmundur segir að innan stjórnkerfisins að undanförnu hafi verið talað um það að Úlfar yrði mögulega látinn fara.
Þetta kemur fram í færslu Sigmundar á Facebook.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti Úlfari Lúðvíkssyni, fyrrverandi lögreglustjóra lögreglunnar á Suðurnesjum, í gær að hún hygðist auglýsa stöðu hans en skipunartími Úlfars rennur út í nóvember. Úlfar óskaði lausnar frá störfum og varð ráðherrann við þeirri ósk.
„Þetta eru afleitar fréttir en að undanförnu hafði verið talað um það í stjórnkerfinu að til þessa gæti komið,“ skrifar Sigmundur og bætir við:
„Þar var ástæðan talin sú að Úlfar hefði verið of hreinskilinn um stöðuna í útlendingamálum og skipulagðri glæpastarfsemi og sjálfur ákveðið að gera ráðstafanir til að verja landamærin.
Þótt þetta hafi allt verið nauðsynlegt, innan valdheimilda og til þess fallið að stíga inn í tómarúmið sem stjórnvöld skildu eftir gerði framtakssemin hann að skotspón.“
Úlfar sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að það hefði komið honum í opna skjöldu að ráðherrann hygðist auglýsa stöðu hans.
„Brottvikning Úlfars felur í sér afleit skilaboð til lögreglunnar og bendir til þess að stjórnvöld leggi meira upp úr því að fela vandann en að taka á honum,“ skrifar Sigmundur.
Margrét Kristín Pálsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið sett tímabundið í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum.